Jón Ingi Benediktsson, forstöðumaður rekstrardeildar RÚV

Download Report

Transcript Jón Ingi Benediktsson, forstöðumaður rekstrardeildar RÚV

Ábati rammasamninga
Ríkiskaupa:
Hvað hafa þeir gert fyrir RÚV
Jón Ingi Benediktsson
Innkauparáðstefna Ríkiskaupa,
7. nóvember 2013.
• Mesti ábati RÚV að vera aðili að rammasamningum Ríkiskaupa er að annars
þyrfti fyrirtækið að vera með nokkra starfsmenn upptekna í að forma útboð,
kalla eftir sérfræðiráðgjöf við gerð útboðslýsinga o.þ.h.
• Sparnaður í mannafla, tíma og verðum.
• Uppfyllum lögin um opinber innkaup.
• Nýtum okkur verðfyrirspurnir og örútboð til að fá hagkvæmasta verðið.
• Fastur afsláttur segir lítið, heldur er það endanlegt verð sem skiptir máli.
• Hægt að fastsetja verð í ákveðna tímalengd.
• Ráðgjafar hvort sem er Ríkiskaupa eða sjálfstætt starfandi eru almennt ódýrir
bornir saman í hlutfalli við heildarinnkaup.
• Hræðsla við að skipta um birgja með flókna þjónustu er ástæðulaus
ávinningur oft tvöfalt meiri en upp er lagt með, því endurskipulagning
verkferla skilar í flestum tilvikum álíka og lægra verð.
• Getum treyst því að viðkomandi birgjar geti staðið við kaup.
• Ráðgjafakostnaður skilar sér oftast við fyrstu kaup.
Nokkur dæmi um innkaup og ábata rammasamninga:
• RÚV var nýlega að staðfesta kaup á 128 stk. af rafgeymum fyrir varaaflgjafa
okkar(UPSA). Munur á milli lægsta og hæsta tilboðs var um 15% og var verðið í
krónum talið án framreiknings rúmum 100.000 krónum lægra en síðustu kaup
sem voru 16/6 2008 eða fyrir rúmum 5 árum.
• RÚV var nýlega að semja við birgja um prent- og ljósritunarpappír sem við erum
stórir notendur af, munur á milli lægsta og hæsta verðs var um 28% - þarna
fastsettum við verð á samningstíma.
• RÚV var nýlega að semja við birgja um tónera og var munur á milli lægsta og
hæsta verðs 24%
• Eins og nýgerður rammasamningur um raforkukaup ber með sér og ég hélt fram
hér fyrir 2 árum, þá er svigrúm orkusalanna mun meira heldur en þeir hafa
almennt haldið fram og geta þetta verið umtalsverðar upphæðir hjá stórum
orkukaupum.