Hluti 8-11-13 - Mannvirkjastofnun

Download Report

Transcript Hluti 8-11-13 - Mannvirkjastofnun

Byggingarreglugerð 2012
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
8.1
8.2
8.3
8.4
8.5
Markmið og almennar kröfur
Burðarvirki
Sement og steinsteypa
Stál og ál
Timbur og gler
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• Erindisbréf ráðherra
– Áhersla á að skapa örugg skilyrði fyrir börn
• Grunnkrafa í lögum um mannvirki
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• 8.1 Markmið og almennar kröfur
-
Hús og önnur mannvirki skulu ávallt gerð úr
haldgóðum byggingarefnum, þola íslenskt veðurfar
og þá áraun sem ætla má að þau verði fyrir.
Burðarvirki mannvirkis skal vera fullnægjandi að
gerð, þannig að mannvirkið sjálft eða einstakir
berandi hlutar þess hvorki sígi óeðlilega né hrynji
og komið sé í veg fyrir að formbreytingar verði
umfram heimil mörk.
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• 8.1 Markmið og almennar kröfur – frh.
–
–
Tryggja skal fullnægjandi stöðugleika allra þátta
mannvirkja á byggingartíma og koma skal í veg
fyrir möguleg skaðleg áhrif á mannvirki af völdum
veðurs.
Skilgreint er hvernig og hvenær hönnuðum ber að
staðfesta fullnægjandi burðarþol eldri bygginga
þegar gerðar eru breytingar á þeim eða starfsemi
innan þeirra breytt.
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• 8.2 Burðarvirki
–
–
–
–
–
Tilvísun er í evrópska þolhönnunarstaðla
(Eurocodes) og íslenska þjóðarviðauka við þá.
Ítarlegri kröfur til festinga, m.a. fjallað um efnisval
og hættu á tæringu.
Formbreytingakröfur – ítarlegri ákvæði auk
smávægilegra breytinga.
Hegðun bygginga vegna titrings á að vera
ásættanleg með þægindi notenda í huga.
Slagregnsprófun glugga til að tryggja að þeir henti
við íslenskar aðstæður.
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• 8.3 Sement og steinsteypa
– Alkalívirkni steinefna, tekin upp tilvísun til RILEM
prófunaraðferða auk ASTM staðla.
– Frostþol steinsteypu, tekin upp tilvísun í sænskan
staðal.
– Heimild steypustöðvar til framleiðslu á steinsteypu
til notkunar í mannvirkjum er háð því að viðkomandi
rekstraraðili hafi jákvæða umsögn óháðrar
rannsóknarstofu, sem Mannvirkjastofnun
viðurkennir, um að starfsemi og framleiðsla
stöðvarinnar uppfylli ákvæði reglugerðar þessarar
og viðeigandi staðla.
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• 8.3 Sement og steinsteypa – frh.
– Leyfisveitandi skal gæta þess að jákvæð umsögn
um steypustöð liggi fyrir vegna mannvirkjagerðar í
hans umdæmi.
– Ef steinsteypa uppfyllir ekki kröfur gæðamats skal
leyfisveitandi banna notkun hennar uns úr hefur
verið bætt og tilkynna það til Mannvirkjastofnunar.
8. hluti
Burðarþol og stöðugleiki
• 8.4 Stál og ál
– Áhersla á tæringarvarnir.
• 8.5 Timbur og gler
– Gagnvörn timburs, vísað til staðals og kerfis
Norræna timburverndarráðsins.
– Nýjar kröfur vegna glers, m.a. vísað í norskan
staðal og nýútgefin rb-blöð um glerþykktir og val
glergerða við mismunandi aðstæður.
11. hluti
Hljóðvist
11.1 Varnir gegn hávaða
• Erindisbréf ráðherra
– Bætt hljóðvist m.a. í umhverfi barna
– Áhersla á að skapa örugg skilyrði fyrir börn
• Grunnkrafa í lögum um mannvirki
11. hluti
Hljóðvist
• Kröfustig aukið og kröfur gerðar skýrari með því að taka
upp viðmið við staðal (ÍST 45). Þar með eru kröfur til
hljóðvistar í húsum á Íslandi orðnar sambærilegar þeim
kröfum sem almennt gilda á Norðurlöndum.
• 11.1 Varnir gegn hávaða
– Byggingar og önnur mannvirki skulu þannig
hönnuð og byggð að heilsu og innra umhverfi sé
ekki spillt af völdum hávaða og óþægindum af
hans völdum sé haldið í lágmarki. Hávaði sem fólk
í mannvirki eða næsta nágrenni skynjar skal vera
viðunandi og ekki hærri en svo að það geti sofið,
hvílst og starfað við eðlileg skilyrði.
11. hluti
Hljóðvist
• 11.1 Varnir gegn hávaða – frh.
– Þess skal gætt sérstaklega að hljóðvist sé góð í
umhverfi barna, s.s. í leikskólum, grunnskólum,
frístundaheimilum og öðrum stöðum þar sem börn
dvelja. Jafnframt skal gæta sérstaklega að hljóðvist
m.h.a. þörfum heyrnarskertra.
– Byggingar skulu þannig hannaðar að óþægindi vegna
hávaða innan rýma, frá aðliggjandi rýmum, lögnum,
tæknibúnaði og umferð séu takmörkuð. Þessar kröfur
skulu uppfylltar í samræmi við fyrirhugaða notkun.
– Ákvæði um staðfestingu á fullnægjandi hljóðvist vegna
breytinga á þegar byggðum mannvirkjum.
13. hluti
Orkusparnaður og hitaeinangrun
13.1 Almennt um orkusparnað
13.2 Heildarorkuþörf, ákvörðun U-gilda
og heildarleiðnitap
13.3 Mesta leiðnitap byggingarhluta
13.4 Raka- og vindvarnir
13.5 Loftþéttleiki húsa
13. hluti
Orkusparnaður og hitaeinangrun
• Markmiðsákvæði laganna
– Að stuðla að vernd umhverfis með því að hafa
sjálfbæra þróun að leiðarljósi við hönnun og gerð
mannvirkja
– Að stuðla að góðri orkunýtingu við rekstur bygginga
• Grunnkrafa í lögum um mannvirki
13. hluti
Orkusparnaður og hitaeinangrun
• Kröfur um einangrun eru auknar með orkusparnað og
vistvænni byggingar í huga. Í þessum áfanga færum við
okkur nær norrænum kröfum, en kröfur reglugerðarinnar
eru þó ennþá talsvert vægari en þær norrænu.
• 13.1 Almennt um orkusparnað
– Við ákvörðun einangrunar í mannvirkjum ber að
tryggja hollustu og þægindi innan mannvirkja
jafnframt því að orkunýting sé hagkvæm og
náttúruauðlindir nýttar á sjálfbæran hátt.
13. hluti
Orkusparnaður og hitaeinangrun
• 13.2 Heildarorkuþörf, ákvörðun U-gilda og
heildarleiðnitap
–
–
–
Heildarorkuþörf byggingar skal ákvarðast að
teknu tilliti til heildarleiðnitaps, loftskipta
byggingar og lofthita úti og inni.
Útreikningur U-gilda byggingarhluta skal gerður í
samræmi við ÍST EN ISO 6946 og ÍST 66.
Heildarleiðnitap skal reiknað fyrir allar
nýbyggingar.
13. hluti
Orkusparnaður og hitaeinangrun
• 13.3 Mesta leiðnitap byggingarhluta
–
–
–
Kröfur eiga annars vegar við um nýbyggingar og
viðbyggingar og hins vegar um viðhald mannvirkja.
Heimilt er að U-gildi einstakra byggingarhluta í
nýbyggingum sé allt að 20% hærri en fram kemur í
reglugerðinni, en þá skal auka einangrunarþykktir annarra
byggingarhluta tilsvarandi til að heildarleiðnitap
byggingarinnar hækki ekki.
Á svæðum þar sem orkukostnaður vegna húshitunar er hár
á íslenskan mælikvarða er mælt með að leiðnitap
nýbygginga sé a.m.k.10% lægra en reglugerðin kveður á
um. Við viðhald og endurnýjun byggingarhluta á þessum
svæðum er mælt með að U-gildi fyrir þak, útveggi og gólf
taki mið af kröfum til nýbygginga.
13. hluti
Orkusparnaður og hitaeinangrun
• 13.4 Raka- og vindvarnir
–
Við hönnun og útfærslu á einangrun húsa skal
þess gætt að raka- og vindvarnir séu fullnægjandi
svo raki og lofthreyfing hafi ekki óæskileg áhrif á
einangrunargildi byggingarhluta og ekki geti orðið
uppsöfnun raka í byggingarhlutanum.
• 13.5 Loftþéttleiki húsa
–
Tryggja skal að hús séu nægjanlega loftþétt til að
koma í veg fyrir orkutap og að dragsúgur valdi
ekki óþægindum.