Transcript Slide 1

Slys/áverkar í mjöðm og nára
• Nokkuð algengir hjá íþróttafólki
• Sérstaklega í fótbolta, íshokkí,
skíðagöngu, grindahlaupi, hástökki.
• Sænsk rannsókn sýndi að 5% af öllum
meiðslum hjá fótboltafólki var í
mjöðm/nára
• Algengustu meiðslin eru rifnir vöðvar.
• Bólga í slímbelg kemur bara fyrir í
slímbelgnum yfir trochanter major.
Bólga í slímabelg
• Slímbelgurinn yfir trochanter major verður
oft fyrir höggi eins og þegar handboltafólk
dettur á mjöðmina.
• Þá krmst hluti af slímhimnunni í belgnum
sem leiðir til blæðingar og bólgu.
• Einkenni: Sársauki og bólga yfir trochanter
major sem stundum leiðir niður lærið.
Aðfærsla og fráfærsla læris með beint hné
veldur sársauka
Bólga í slímabelg
• Meðferð: Minnka álag á mjöðminni,
bólgueyðandi og annarskonar þjálfun sem
ekki leiðir til meira álags á mjöðmina. Ef
sársaukinn er hunsaður verða oft þessi
meiðsl krónísk.
Rifinn aðfærsluvöðvi (adductor)
• Þau meiðsl sem hvað oftast fyrirkemur í mjúku
hlutunum (add. brevis, longus, magnus, gracilis)
• Oftast í add. longus þar sem sin og vöðvi koma
saman eða í festingunni á lífbeininu.
• Orsök: Kröfug fráfærsla (abduction) læris t.d. við
tæklingu í fótbolta
• Einkenni: Mikill og skyndilegur sársauki í nára
eða innan á læri við stærri meiðsl. Bólga. Við
samdrátt í aðfærsluvöðvum finnur oft sá meiddi
sársauka þannig að auðvelt er að staðsetja
meiðslin.
Rifinn aðfærsluvöðvi (adductor)
• Meðferð: Strax skal meðhöndla meiðslin eftir
RICE meðferðinni.
• Hægt er að gefa bólgueyðandi í stuttan tíma.
Það dempar bólguviðbrögðin og þar af leiðaldni
stærðina á örvefnum á svæðinu. Er einnig
sársaukastillandi.
• Eins fljótt og sársaukinn leyfir á sá meiddi að
byrja með æfingar á meidda vöðvanum.
Mikilvægt að ganga hægt fram þar sem þessi
skaði getur auðveldlega orðið króniskur ef það
er gert.
Rifinn aðfærsluvöðvi (adductor)
• Létt styrktarþjálfun eftir 3-4 daga með
léttum teygjum. Þegar hægt er að teygja
vel á án þess að finna fyrir sársauka má
byrja með mikið álag í styrkarþjálfuninni.
• Hjól/sund eru góð hreyfiform í
eftirmeðferðinni
• Nokkuð algeng meiðsl eru líka rifnir vöðvar
eins og rectus femoris, iliopsoas og rectus
abdominis
M. iliopsoas
M. Rectus femoris
Bólga í sinum aðfærsluvöðvanna
• Algengasta orsökin að krónískum
sinabólgum í aðfærsluvöðvum er þegar of
geyst er farið af stað eftir að vöðvi hefur
rifnað.
• Einnig getur þessi krónísku meiðsl líka
komið án þess að vöðvi hafi rifnað við
ofálag á svæðinu sin/vöðvi eða þar sem
sinin festist við lífbeinið, sérstaklega
adductor longus
Bólga í sinum aðfærsluvöðvanna
• Einkenni: Oft sársauki sem erfitt er að
staðsetja alveg í nára eða yfir sininni á
adductor longus þar sem hún festist við
lífbeinið. Þegar sársaukinn er orðinn meira
krónískur getur hann leitt bæði upp og
niður. Aðrir vöðvar og vöðvafestingar á
svæðinu geta valdið sársauka þar sem
vitlaust álag kemur oft á þessa vöðva við
meiðslin.
Bólga í sinum aðfærsluvöðvanna
• Vöðvinn er oft stífur fyrst á morgnanna og
við byrjun æfingar og þegar hann hitnar
hverfiur stífleikinn en sársaukinn eykst.
Þegar vöðvinn kólnar verður hann aftur
stífur.
• Ef ekkert er gert eykst sársaukinn og
einstaklingurinn getur að lokum ekki æft
og sársaukinn kemur jafnvel við
venjulegann gang.
Bólga í sinum aðfærsluvöðvanna
• Meðferð: Getur tekið langann tíma. Rólegar
teygjur og æfingar sem bæta blóðflæðið strax og
það er hægt.
• Styrktaræfingar um leið og sjúklingurinn þolir
það. Sársaukamörk!Þegar vöðvinn styrkist koma
eftirgefandi styrkaræfingar meira inn og einnig
samhæfingaræfingar. Þegar þú getur teygt vel á
vöðvanum án þess að finna sársauka getur þú
byrjað smám saman með keppnislíkar æfingar.
• Getur tekið langann tíma og gæti þurft uppskurð.
Sársauki í sin rétta lærvöðvans
Rectus femoris-tendinose
• Skotæfingar í fótbolta eða hjá
spretthlaupurum í startæfingum
• Einnig ef oft geyst er farið af stað eftir að
vöðvinn hefur rifnað.
• Einkenni: Sársauki sentralt í náranum við
álag og sérstaklega við spretti
• Meðferð: Aðalmeðferðin er styrktar- og
liðleikaþjálfun með stígandi álagi eins og
við sársauka í aðfærsluvöðvunum.
Sársauki í sin rétta lærvöðvans
Rectus femoris-tendinose
• Hægt að setja kortisonsprautu ef
sársaukinn gefur sig ekki þannig að erfitt
er að byrja þjálfun
• Auðveldari meðferð en við sársauka í
aðfærsluvöðvum.
Blæðing inn á lærvöðva
• Algengustu slysin/áverkarnir í íþróttum.
• 14 % af fótboltameiðlsum (sænsk
rannsókn)
• Einkenni: Sársauki, bólga og minni
hreyfigeta.
• Meðferð
• Blæðingin getur verið intermuskulær eða
intramuskulær
Intramusklulær blæðing
Intermuskulær blæðing
Blæðing inn á lærvöðva
• Þegar blæðingin er intramuskulær er
blæðingin inni í vöðvahimnunum og
þrýstingur eykst.
• Þegar blæðingin er intermuskulær fer
blóðið þar sem minnst mótstaða er oftast
niður í átt að hné. Það verður ekki aukinn
þrýstingur, ekki aukinn sársauki eða minni
hreyfigeta.
Blæðing inn á lærvöðva
• Einkenni: Sársauki, síðan bólga og minni
hreyfigeta. Mar eftir nokkra daga ef blæðingin
var intermuskulær.
• Ef ekki er hægt að beygja hnéð yfir 90 gráður er
skaðinn oftast intramuskulær.
• Meðferð: RICE. Ef skaðinn er framan á lærinu
ætti að gera RICE með mjöðm og hné beygð.
Það leiðir til mótþrýstings inni í vöðvanum og
minnkar blæðinguna. Það verður líka léttara að
ná aftur liðleika.
Blæðing inn á lærvöðva
• Æfingar mega byrja eftir 4-5 daga við
alvarleg meiðsli, 2-3 við minni meiðsli.
• Byrja með æfingar sem auka blóðflæði
eins fljótt og hægt er. (Hjóla, nudd)
• Tekur oft langan tíma að ná fullum bata ef
blæðingin er intramuskulær (6-12 vikur)
Intermusklulær blæðing er oft orðin góð á
1-2 vikum.
Beinbrot vegna álags
Stressfracture
• Nokkuð algengt á lærleggshálsi (collum femoris)
• Hjá langhlaupurum er brot þarna um 7 % af
öllum álagsbrotum
• Oft vegna of mikillar álagsaukningar eða vegna
þess að farið er af mjúku undirlagi á harðara.
• Einhæf hlaup á malbiki eru eitt af því sem eykur
hættuna á þessum meiðslum. Einnig getur
mismunur á fótalengd skipt máli
Beinbrot vegna álags
Stressfracture
• Einkenni: Sársauki í mjöðm við álag.
Sársaukinn hverfur við hvíld en kemur
strax aftur þegar byrjað er að æfa.
• “Hoppprófið
• Meðferð: Hækjur til að létta álag í 4-6 vikur
• Önnur þjálfun (sund, hlaup í vatni, hjól og
almenn styrkarþjálfun)
Beinbrot vegna álags
Stressfracture
• Fyrirbyggjandi: Góðir hlaupaskór og skipta
oft á milli undirlags