1. kafli annar hluti

Download Report

Transcript 1. kafli annar hluti

Almenn sálfræði
hugur, heili og hátterni
Höf: Aldís Guðmundsdóttir
Jörgen Pind
Kennari: Þórður Sigurðsson
1. Kafli
Hvað er sálfræði
Sálfræði sem vísindagrein hefur heillað marga vegna þess að þar er
leitað svara við spurningum er snerta mannlegt eðli.
Aristóteles
Grísku heimspekingarnanir
Aristóteles og Plató voru
„fyrstu sálfræðingarnarnir“.
Veltu fyrir sér tengsl sálar við
líkama. Þetta hefur ekki verið
viðfangsefni vísindalegrar
sálfræði!
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
384-322 f.kr.
Þórður Sigurðsson
Plató
428-327 f.kr.
2
Eðli fræðigreina
Hversdagsleg þekking fólks á hinum ýmsu fræðigreinum endurspeglar
tíðarandann hverju sinni. Fræði almennings hafa þann eiginleika að geta
meðtekið vísindalega þekkingu og umbreytt henni.
T.d. Þróunarkenning Darwins
Í dag
Vísindaleg staðreynd
(rökstutt)
Almenn þekking hjá flestum
Sálfræðin er ung vísindagrein og flest fólk telur sig hafa talsvert innæi
í mannlegt eðli. Erum öll sálfræðingar og mannþekkjarar
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
3
Vandkvæði við rannsóknir í sálfræði
Einkum þrennt sem menn þurfa að taka tillit til við rannsóknir í sáfræði
1.
Margir þættir sem verka samtímis á hugsun og hegðun
fólks. Erfitt að hafa fullkomna stjórn á öllum þáttum.
2.
Sjálfsvitund eða tilfinning mannsins fyrir sjálfum sér.
Maðurinn hefur tilhneigingu til að fella niðurstöður að eigin
væntingum.
3.
Rannsóknahrif, fólk hefur tilhneigingu til að breyta hegðun
sinni þegar það veit að það er verið að rannsaka það
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
4
Viðfangsefni sálfræðinga
Að lifa án minnis – „Memento“. Áhrif minnisleysis á
fólk.
Í hverju er andlitsfegurð fólgin – Flokkum við fólk eftir
útliti. Hefur útlit áhrif á mat okkar á fólki.
Að greina athyglisbrest með ofvirkni – Klínísk
greiningarvinna á ýmiss konar kvillum/þroskafrávikum.
Sálfræðingar sinna oft öryggismálum –
Mannþáttafræði, leiðir til að tryggja snurðulaus
samskipti manns og vélar (t.d. umferðaröryggismál)
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
5
Hvað er sálfræði
Heiti greinarinnar er dregið af grísku orðunum „psyche“ sem
þýðir sál og „logos“ sem þýðir fræði
„Fræðigreinin um sálina“
Sálfræðin er fræðigrein sem fjallar um atferli og hugarstarfsemi
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
6
Rætur sálfræðinnar
Rætur sálfræðinnar má einkum rekja til þriggja greina
Heimspeki
Líffræði
Eðlisfræði (Náttúruvísindi)
Heimspekingar eins og
Aristóteles, Descartes,
Locke og fleiri fjölluðu
um efni sem er
viðfangsefni sálfræðinnar
í dag
1.
Lífeðlisfræðilegar
rannsóknir tengdar
starfsemi taugafrumna
og heila
Vísindalegar aðferðir og
aðferðafræði. Mikil
áhersla á vísindalegar
aðferðir við rannsóknir.
2.
Þróunarkenning
Darwins
Sjálfstæði fræðigrein verður til. Rakið til Wilhelms Wundt sem
stofnaði fyrstu tilraunastofuna í Leipzig árið 1879. William James
gaf út bókina „principles of pcychology“ árið 1890
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
7
Fyrstu sálfræðistefnurnar
1. Formgerðarstefna Wundts, viðfangsefni sálfræðinnar
meðvituð hugarstarfsemi og rannsóknaraðferðin
sjálfsskoðun.
2. Hlutverksstefna, svar William James við formgerðarstefnu.
Áhrif frá Darwin og viðfangsefni sálfræðinnar er markmið
hegðunar og hugsunar
3. Sálgreining Freuds, viðfangsefni einkum dulvitund og hvatir.
4. Atferlisstefnan, John Watson, áhersla á vísindalegar aðferðir
og rannsóknir á hegðun
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
8
Ráðandi sjónarmið í nútímasálfræði
Sálgreining, áhrifamikil kenning um mannlegt eðli
Atferlisstefna, skýringar er varða nám. Mikil áhrif á
meðferð og aðferðafræði.
Hugfræði, vísindalegar rannsóknir á hugarstarfsemi.
Mannúðarsálfræði, óbein áhrif á sálfræði (starfsreglur
og siðareglur). Notuð við meðferð
Líffræðileg sálfræði, mikils metin í dag vegna þess hve
rannsóknartækni hefur fleygt fram. Rannsóknir á starfsemi
heilans gegna mikilvægu hlutverki í nútímasálfræði
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
9
Áherslur í sálfræði á síðustu öld
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
1879 – 1910
Hugsun
1910 – 1960
Hegðun
1960 – 1994
Hugsun
Þórður Sigurðsson
10
Álitamál í sálfræði
Frjáls vilji – löghyggja/ Erfðir - umhverfi
Um ofangreind álitamál hafa menn þráttað í gegnum tíðina.
Þessi álitamál endurspeglast í kenningum innan sálfræðinnar.
Frjáls vilji: Að hve miklu leyti er hegðun mannsins lögmálsbundin eða
stjórnast hún af frjálsum vilja. Fólk hefur val þegar það tekur
ákvarðanir
Löghyggja: Öll hegðun á sér orsakir eins og önnur náttúruleg
fyrirbæri. Hegðun háð orsakalögmálum og hlutverk sálfræðinnar er
að skýra þessi lögmál. Talsmenn þessarar stefnu telja að sálfræðin
geti aldrei orðið hreinræktuð vísindagrein ef ekki er gengið út frá
því að hegðun sé lögmálsbundin.
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
11
Frjáls vilji - löghyggja
Atferlisstefnan
Sálgreining
Líffræðileg
sálfræði
Hugræn
sálfræði
Mannúðarsálfræði
Hreinræktuð löghyggjustefna.
Barnið fæðist sem
óskrifað blað.
John B Watson
B.F. Skinner
Hreinræktuð
löghyggjustefna.
Dulvitund stýrir
hegðun
Lögmálsbundin
hegðun.
Hegðun útskýrð
með tilvísun í
taugakerfið.
Þróunarkenning
Darwins
Væg löghyggja
Vísindalegar
rannsóknir.
Athygli gegnir
mikilvægu
hlutverki.
Rannsóknir á
tungumálinu og
minni.
Frjáls vilji
Hegðun
sjálfsákvörðun
viðkomandi
Carl Rogers og
Abraham Maslow.
Maðurinn getur sett
sér markmið í lífinu
og hagað því
samkvæmt þeim.
Klínísk meðferð
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
12
Erfðir - umhverfi
Að hve miklu leyti mótast hegðun af erfðum og umhverfi?
Endurspeglast í álitamáli innan heimspekinnar þar sem tvær stefnur
takast á, ásköpunarhyggja og reynsluhyggja.
Ásköpunarhyggja: Barnið fæðist inn í þennan heim með áskapaða
eða meðfædda þekkingu til að takast á við veröldina. René Descartes
(1596-1650) talsmaður þessarar stefnu. Allar hugmyndir til staðar við
fæðingu, t.d. hugmyndin um Guð.
Reynsluhyggja: Hver og einn aflar sér þekkingar í gegnum
skynfærin með því að prófa sig áfram. „Tabula Rasa“, maðurinn fæðist
sem óskrifað blað. John Locke (1632-1704), enskur heimspekingur
upphafsmaður þessarar stefnu.
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
13
Erfðir – umhverfi
Sjónarmið sálfræðinga í dag
Enn í dag deila menn um hvort er öflugra í mótun
einstaklinga erfðir eða umhverfi. Menn hafa samt lagt
þessa deilu til hliðar þegar talað er um mótun
mannnsins í heildstæðum skilningi. Menn skoða
frekar áhrif erfða annars vegar og umhverfis hins
vegar sem orsök einstakra kvilla (t.d. geðklofi,
lestrarörðugleikar, einhverfa og ofvirkni)
ER GEÐKLOFI ERFÐASJÚKDÓMUR?
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
14
Afstaða til mikilvægis erfða eða umhverfis
Erfðir
Líffræðileg
sálfræði,
áhersla á
erfðir og
lífeðlilegar
skýringar á
hegðun
Umhverfi
Sálgreining,
áhersla á
dulvitaðar hvatir
og orsakir
hegðunar eiga
sér dulvitaðar og
tilfinningalegar
skýringar
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Hugræn
sálfræði,
áhersla á
meðfæddan
búnað við að
ferla
upplýsingar
og
hugskemur
Mannúðarstefna
, viðurkennir
lífeðlislegar þarfir
en leggur áherslu
á félagslegt
umhverfi og
metnað
Þórður Sigurðsson
Atferlisstefna,
öll hegðun
áunnin og mótast
af umhverfi
15
Ólík sjónarmið nútímasálfræði
Á árunum frá 1879 og fram yfir seinni heimsstyrjöldina voru
flokkadrættir milli mismunandi stefna/skóla í sálfræðinni. Menn
héldu fram ágæti eigin stefna fram yfir aðrar. Þetta hefur gjörbreyst.
Menn hafa áttað sig á að mismunandi viðfangsefnum hæfa
mismunandi kenningar og eðlilegt er að nálgast efni með ólíkum
hætti
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
16
Stefnur í sálfræði
Líffræðilegt
sjónarmið
Sálfræði
Hugrænt
sjónarmið
Sálgreiningarsjónarmið
Atferlissjónarmið
Mannúðarsjónarmið
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
17
Líffræðilega sjónarmiðið
Taugafruma
Byggir að mestu leyti á framþróun sem átt hefur sér stað í rannsóknum á
heilanum. Breytingar í taugafrumu er forsenda náms (það eru 100 milljarðar í
heilanum). Þeir sem aðhyllast þessa stefnu líta svo á að öll sálræn starfsemi
tengist virkni í heilanum og taugakerfinu
Dæmi um rannsóknir í anda þessarar stefnu: A) Þróun heilans og atferlis
(byggt á þróunarkenningunni). B) Þroskaferli heila og taugakerfis yfir
æviskeiðið. C) Geðlyfjafræði (hvernig samspili boðefna og sálsýki er háttað).
D) Skynjun og skyntúlkun (rannsóknir á skynfærum og úrvinnslu skynáreita í
taugakerfinu). E) Stjórnun og samhæfing hreyfinga. F) Stjórnun atferlisvaka,
t.d. kynhvöt og fæðuinntaka. G) Líkamssveiflur (líkamsklukkur), m.a. athygli
og svefn. H) Geðshræringar og geðsjúkdómar. I) Taugafræðilegar forsendur
náms, minnis, máls og hugsunar. J) Áhrif heilasköddunar á sálfræðilega
starfsemi
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
18
Atferlisstefnan
Þetta sjónarmið er undir áhrifum af reynsluhyggju í heimspeki og að
sumu leyti af þróunarkenningu Darwins. Gengið út frá því að öll hegðun
sé lærð af umhverfinu og hlutverk sálfræðinga er að skýra hvernig þessu
námi er háttað.
Stundum kallað Á-S sálfræði (Á stendur fyrir Áreiti og S fyrir Svörun)
Tengist Darwinisma á þann hátt að sálfræðingar hagnýttu sér rannsóknir
á dýrum í rannsóknum á mannlegu atferli
Rannsóknir fara fram á tilraunastofum. Hafa verið hagnýttar við alls kyns
meðferð á fólki.
Grundvallarlögmál atferlisstefnunnar: Viðbragðsskilyrðing og virk skilyrðing
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
19
Hugræna sjónarmiðið
Með hugræna sjónarmiðinu er í vissum skilningi horfið aftur að
uppruna sálfræðinnar (hugur, vitund, minni, tilfinningar og skynjun).
Upphafið má rekja til sjötta áratugarins og margir líta á hana sem
andsvar við atferlisstefnu.
Viðfangsefni sálfræðinnar samkvæmt þessari stefnu: Rannsóknir á
vitsmunastarfsemi, minni, athygli, lestur, ákvörðunartaka og þrautalausnir.
Með því að sleppa því sem gerist innra með lífverunni er verið að sneiða hjá
þýðingarmiklum upplýsingum sem á að vera kjarninn í sálfræðilegum
kenningum.
Sálfræðingar sem starfa í anda þessa sjónarmiðs hafa unnið með
fræðimönnum á ýmsum sviðum (t.d. Taugavísindi, tölvufræði og tölfræði) við
að skapa tauganetkenningar og gervigreindarlíkön
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
20
Þrautalausnir
Strikið í gegnum alla punktana með fjórum samföstum línum,
án þess að lyfta pennanum frá blaðinu.
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
21
Áherslumunur atferlissinna og hugfræðinga
Með atferlissjónarmiðinu er einungis litið á sambandið milli
áreitis og svörunar: Á-S sálfræði
Hugræn ferlun eða
úrvinnsla áreita hefur
úrslitaáhrif á svörun sem er í raun háð
vitrænni túlkun
Áreiti
Svörun
Með hugræna sjónarmiðinu færist áhersla á
það sem gerist innra með manninum
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
22
Sjónarmið sálgreiningar
Kennt við Sigmund Freud (1856-1939). Byggist ekki á
tilraunum heldur yfirgripsmiklum athugunum
(ferilsathugunum t.d. rannsóknir á sefasýki)
Kenningar Freuds komu fram skömmu áður en
atferlisstefnan var sett fram í USA. Sálgreining hefur haft
mikil áhrif á sálfræðina en innan vísindasamfélagsins hefur
henni verið hafnað (óvísindaleg aðferð).
Í grundvallaratriðum gengur þetta sjónarmið út að bældar hvatir og
minningar geta komið fram í draumum, mismæli (Freudian slip) og
vanabundnum hegðunarmynstrum, t.d. í taugaveiklun. Nota dáleiðslu eða
viðtöl (frjáls hugrenningaraðferð).
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
23
Mannúðarsjónarmið (fyrirbærasjónarmiðið)
Mannúðarsálfræði (þriðja aflið) leggur áherslu á eiginleika
mannsins. Kom fram sem mótvægi við sálgreiningu og
atferlisstefnu. Þekktustu mannúðarsálfræðingarnir voru Carl Rogers
(1902-1987) og Abraham Maslow (1908-1970).
Áhersla á upplifun og meðvitaða reynslu hvers og eins. Maðurinn
var í eðli sínu góður og jákvæður og stefndi stöðugt að auknum
þroska. Einstaklingar hafa þörf fyrir sjálfsbirtingu, þ.e. Þörf
mannsins til að vaxa og nýta hæfileika sýna til fullnustu.
Mannúðarsjónarmið hefur gagnast ágætlega í meðferð. Hefur verið
gagnrýnt fyrir að vera óvísindlegt
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
24
Helstu undirgreinar sálfræðinnar
1.
Afbrigðasálfræði: Fjallar um hegðun og andlegt ástand sem telst afbrigðilegt.
Meginviðfangsefni afbrigðasálfræðinnar eru geðraskanir og tilfinninga- og
persónuleikaraskanir hvers konar.
2.
Félagssálfræði: Undirgrein sem stendur félagsfræðinni næst. Fjallar um það hvernig
félagsleg áhrif móta hegðun fólks, viðhorf og skoðanir. Viðfangsefni er til dæmis
viðhorfamyndun, fordómar, staðalímyndir, hópþrýsingur og flokkadrættir
3.
Hugræn sálfræði: Ein gróskumesta undirgrein nútímasálfræði. Hún tekur til rannsókna
á minni, hugsun, athygli, skynjun og máli.
4.
Klínísk sálfræði og ráðgjafasálfræði: Margir sálfræðingar starfa við klíníska sálfræði eða
ráðgjöf af ýmsu tagi. Dæmi um klínísk störf eru meðferð og greining geðraskana,
atferlismeðferð, fjölskylduráðgjöf, skólaráðgjöf og vinna á svið fíkniefna og forvarna.
Klínísk sálfræði byggist á hagnýtingu sálfræðilegrar þekkingar og lögmála.
5.
Líffræðileg sálfræði: Undir þessa grein falla meðal annars rannsóknir taugafrumum,
heilanum, taugakerfinu, innkirtlakerfinu, boðefnum og genum
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
25
Helstu undirgreinar sálfræðinnar
6.
Persónuleikasálfræði: Sígild undirgrein sálfræðinnar og á rætur að rekja til kenninga Freuds um
persónuleikann. Í nýrri kenningum er lögð áhersla á einstaklingsmun og gengið er út frá að fólk
sé ólíkt vegna meðfæddra persónuleikaþátta sem móti hegðun einstaklinga í ólíkum aðstæðum.
7.
Réttarsálfræði: Sérhæfð undirgrein sálfræðinnar. Megininntak greinarinnar er að beita
sálfræðilegri þekkingu í tengslum við ýmis afbrotamál og réttarhöld yfir meintum
afbrotamönnum.
8.
Skólasálfræði: Tekur á ýmsum vandamálum sem geta komið upp í tengslum við skólastarf
9.
Tilraunasálfræði: Er elsta undirgrein sálfræðinnar og jafnframt undirstöðugrein allra hinna.
Rannsóknir eru gjarnan vísindalegar tilraunir undir stjórn sem ýmist fara fram á
rannsóknarstofum eða við náttúrulegar aðstæður.
10.
Vinnu- og skipulagssálfræði: Tekur til ýmissa þátta í starfsumhverfi fyrirtækja, bæði sem snúast
að starfsánægju og skipulagsmálum.
11.
Þroskasálfræði: Fjallar um þroskaferilinn frá getnaði til grafar. Viðamikil undirgrein sálfræðinnar
þar sem miklar rannsóknir hafa farið fram um áratuga skeið
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
26
Rannsóknir og hagnýting
Tvenns konar sálfræðingar
Þeir sem fást
við rannsóknir
Margir sem
fást við hvort
tveggja í senn
Þeir sem starfa á
stofnunum, vinnustöðum
eða á eigin stofu
Samfélög taka sífelldum breytingum. Eitt megin verkefni
sálfræðinnar er að stuðla að því að aðlögðun milli einstaklings og
umhverfis verði sem best
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
27
Rannsóknir og hagnýting
Til að koma á betri aðlögun milli manns og umhverfis hafa
sálfræðingar ýmist beint sjónum sínum aðmanninum eða
umhverfinu. Fjórar leiðir færar til að stuðla að betri aðlögun
manns og umhverfis:
1.
Einstaklingar eru valdir fyrir ákveðið umhverfi. Til dæmis þegar
margir einstaklingar sækja um sama starfið.
2.
Umhverfi valið fyrir tiltekinn einstakling.
3.
Meðferð fólks. Einstaklingi breytt þannig að hann lagi sig betur
að umhverfi
4.
Meðferð umhverfis. Umhverfi breytt og lagað að manninum
Fjölbrautaskólinn við
Ármúla
Þórður Sigurðsson
28