Almenn sálfræði hugur, heili og hátterni Höf: Aldís Guðmundsdóttir Jörgen Pind

Download Report

Transcript Almenn sálfræði hugur, heili og hátterni Höf: Aldís Guðmundsdóttir Jörgen Pind

Almenn sálfræði
hugur, heili og hátterni
Höf: Aldís Guðmundsdóttir
Jörgen Pind
Kennari: Þórður Sigurðsson
2. Kafli
Ágrip af sögu sálfræðinnar
Í þessum kafla er fjallað í stuttu máli um sögu
sálfræðinnar. Sálfræði er ung vísindagrein og markast
upphaf hennar við seinni hluta 19. aldar þegar fyrsta
rannsóknarstofan var stofnuð í sálfræði. Rakin er í stuttu
máli forsagan að greininni. Áhrif heimspeki, líffræði og
náttúruvísinda (eðlisfræði) á greinina eru raktar. Einnig
er fjallað um framlag Wundts til greinarinnar, upphaf
bandarískrar sálfræði, hugmyndir manna um
greindarmælingar, sálgreiningu, atferlisstefnuna,
hugfræði og sögu sálfræðinnar á Íslandi
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
2
Áhrif heimspekinnar á sálfræði
Heimspekingar hafa velt fyrir sér eðli sálarlífsins.
Aristóteles setti fram kenningu um eðli minnis. Hann
taldi að minni ákvarðaðist af hugtengslum. Ein hugmynd
leiðir til annarrar ef þær eru líkar eða fara saman í tíma
Hugmyndir Descartes voru af öðrum toga. Hann útskýrði
alla líkamsstarfsemi og hátterni manna út frá vélrænum
lögmálum. Sálin að mati Descartes starfaði sem sjálfstæð
eining hafin yfir þessu vélrænu lögmál. Tvíhyggja (efni og
andi).
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
3
Eðli sársauka samkvæmt Descartes
Descartes gerði skýran skýran
mun á sál og líkama.
Samkvæmt Descartes þá
upplifum við sársauka þannig
að þegar barnið snertir eld þá
berst boð eftir hendinni upp í
heila þar sem efni er losað og
berst það niður eftir tauginni.
Vöðvi í höndinni blæs út og
orsakar að barn kippir að sér
höndinni.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
4
Tengsl líffræði við sálfræði
Tvennt sem einkum hefur haft áhrif á sálfræði:
1. Lífeðlisfræðilegar uppgötvanir, rannsóknir á eðli og starfsháttum
taugafrumna/heilarannsóknir
2. Þróunarkenning Darwins
Lífeðlisfræðilegar skýringar á hegðun.
-Descartes: fann sálrænni starfsemi stað í taugakerfinu
-Alexander Bain: gerði tilraun til að brúa bilið milli sálfræði og lífeðlisfræði
-Wilhelm Wundt: faðir sálfræðinnar, notaði heitið lífeðlisleg sálarfræði á
hinu nýju vísindagrein.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
5
Höfuðlagsfræði
Í upphafi 19. aldar settu
Franz J Gall og Johann G
Spurzheim fram þá kenningu
að af höfuðlagi manna
mætti ráða í persónuleika
þeirra og andlega eiginleika.
Hægt að greina á milli 27
mismunandi hæfileika sem
hægt væri að staðsetja á
mismunandi svæðum
heilabarkarins.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
6
Meginstaðhæfingar höfuðlagsfræðinnar
1.
Heilinn er líffæri hugans
2.
Hugurinn er samsettur aðgreindum, meðfæddum hæfileikum.
3.
Að því að þeir eru aðgreindir hlýtur hver hæfileiki að hafa sitt ákveðna aðsetur eða
„líffæri“ í heilanum.
4.
Stærð líffæris er, að öðru jöfnu, til marks um hve öflugt það er.
5.
Lögun heilans (höfuðkúpunnar) ákvarðast af þroska ólíkra hluta hans.
6.
Þar sem lögun höfðukúpunnar veltur á stærð og lögun heilans má af henni sjá, eða
lesa, nákvæmar vísbendingar um sálfræðilega hæfileika og tilhneigingar.
Verkefni
Reynið að átta ykkur á því hvaða staðhæfingar hér að ofan eigi upp á
pallborðið hjá nútíma vísindamönnum og hverjar ekki.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
7
Höfuðlagsfræði
-Paul Broca (1824-1880): Franskur taugalæknir, rannsakaði
málstol. Svæði í heila kennt við hann.
-Carl Wernicke (1848-1905): Staðsetti svæði í heila sem
hafði með málskilning að gera.
-Korbinian Broadman (1868-1918): Fyrstu til að bera
kennsl á svæði í hnakkablaði sem sérhæfa sig í
sjónskynjun.
-Wilder Penfield (1891-1976): Rannsakaði yfirborð heilans
með rafertingu. Kortlagði skyn- og hreifisvæði
heilabarkarins.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
8
Áhrif Charles Darwin á sálfræði
Breskur náttúrufræðingur.
Þróunarkenningin hafði mikil áhrif á
sálfræðina. Samkvæmt
þróunarkenningunni eru allar
lífverur jarðarinnar runnar af sama
stofni en hafa þróast eftir
náttúruval. Setti þróunarkenninguna
fram í bókinni „The origin of the
species“ (uppruni tegundanna,
1859)
1809-1882
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
9
Áhrif Charles Darwin á sálfræði I
Einkum þrennt í kenningum Darwins sem tengist sálfræði
1. Maðurinn er náskyldur dýrum,
hægt að útskýra hegðun mannsins
með því að bera saman við hegðun
dýra (atferlisstefnan). Lögmálið um
líffræðilega samfellu, ákveðin
samsvörun milli líkamsstarfsemi og
sálfræðilegra eiginleika hjá manni
og dýrum. Darwin athugaði atferli
manna og dýra og gat sér til um
tilfinningar út frá látbrigðum og
líkamsstöðu.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Er einhver samsvörun milli
þessara svipbrigða hjá manni
og apa, hvað tilfinningar búa
þarna að baki?
Þórður Sigurðsson
10
Áhrif Charles Darwin á sálfræði II
2. Einstaklingar sömu tegundar
eru frá náttúrunnar hendi
misjafnlega gerðir. Sumir verða
undir meðan aðrir lifa af. Leið
náttúrunnar til að tryggja að
hinir hæfustu lifa af. Kallast
náttúruval. Hvernig tengist þetta
sálfræði. Birtist t.d. í þeirri
viðleitni að mæla mun milli
manna (t.d. greindarmælingar)
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Sir Francis Galton (1822-1911)
Frumkvöðull greindarmælinga
Þórður Sigurðsson
11
Áhrif Charles Darwin á sálfræði III
3. Bók Darwins um látbrigði
tilfinninganna ein sú
merkasta sem skrifuð hefur
verið um þetta efni.
Tilfinningaleg viðbrögð algild
og ásköpuð og eiga rætur að
rekja til fortíðar okkar.
Látbrigðin/Svipbrigðin eru
eins konar sýnileg merki um
um þær tilfinningar sem
bærast með mönnum og
dýrum
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Ólík svipbrigði,
gleði og sorg
Þórður Sigurðsson
12
Forsaga sálfræðinnar í hnotskurn
1.
Hugtengsl eða tengslahyggja: Sú hugmynd að nám byggist á því að mynda tengsl á milli
hugmynda og/eða atburða (sem tengjast í tíma og rúmi).
2.
Hugaratóm: Sú hugmynd að meðvitundin eigi að vera meginviðfangsefni sálfræðinnar og þó
einkum að hún sé samsett úr smáeiningum eða hugaratómum
3.
Togstreita milli þeirra sem telja mannssálina vera hafna yfir vélrænar skýringar (Descartes)
og hinna sem telja að svo sé ekki (Darwin ofl.).
4.
Heilinn er miðstöð sálarlifsins og í honum má finna starfrænt sérhæfð svæði.
5.
Líffræðileg samfella: Náin þróunarleg tengsl eru á milli manna og dýra. Sömu lögmál gilda
um hegðun og jafnvel sálarlíf manna og dýra (Látbrigði tilfinninganna)
6.
Til eru tvenns konar taugar: Skyntaugar og hreyfitaugar. Taugaboð eru rafræn
7.
Vísindalegar aðferðir þar sem þess er gætt að hafa alla rannsóknarþætti undir stjórn. Með
þær að vopni er hinni nýju fræðigrein ekkert að vanbúnaði að standa á eigin fótum.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
13
Sálfræði verður að sjálfstæðri fræðigrein
Fyrsta rannsóknarstofan í Leipzig í Þýskalandi árið 1879. Skilyrðin fyrir
því að grein geti talist sjálfstæð fræðgrein eru:
1.
Gerðar rannsóknir í nafni greinarinnar.
2.
Kennd sem háskólagrein
3.
Þekking greinarinnar er hagnýtt
Undir lok 19. aldar voru öll þessi skilyrði fyrir hendi
Gustav Fechner: Fyrstur til að gera sálfræðilegar tilraunir
Hermann Von Helmholtz: Mældi hraða taugaboða
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
14
Framlag Wundts til hinnar nýju greinar
Frumkvöðull í tilraunasálfræði, fyrstur
til að koma á fót rannsóknarstofu í
sálfræði. Fyrstur til að gefa út
kennslubók og tímarit í sálfræði.
Meginviðfangsefni hans voru rannsóknir
á skynjun. Wundt taldi að sálarlífið
væri samsett úr skyneiningum.
Hugmynd sem rekja má til
heimspekinnar. Hugurinn var ekki efni
heldur fyrst og fremst virkni eða
afsprengi heilastarfsemi (hugfræði).
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
15
Framlag Wundts til hinnar nýju greinar
Wundt rannsakaði tilfinningar og
meðvitund með sjálfsskoðun, þ.e. Að
fylgjast með eigin hugarstarfsemi. Menn
voru ekki alltaf sammála um niðurstöður
slíkra rannsókna. Þrátt fyrir þessa
annmarka var Wundt einn af
mikilvægustu frumkvöðlum innnan
sálfræðinnar. Menn kepptust við að
gagnrýna kenningar hans og skilgreina
viðfangsefni sálfræðinnar.
Myndir af tækjum og tólum sem Wundt
notaði við rannsóknir í sálfræði
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Wundt ásamt samstarfsmönnum sínum í
rannsóknarstofu sinni í Leipzig
Þórður Sigurðsson
16
Hermann Ebbinghaus og minnistilraunir
Heimspekingur að mennt,
rannsóknir Fechners vöktu áhuga
hans á sálfræði. Ebbinghaus reyndi
að beita vísindalegum aðferðum á
æðri vitsmunastarfsemi.
Rannsakaði minni með því að
leggja á minnið orðleysur af
orðalista. Hann athugaði síðan
hversu langan tíma það tæki hann
að læra listana til hlítar. Athugaði
síðan eftir ákveðinn tíma (klst,
dagur) hversu mikið hann mundi
af listanum.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
1850-1909
17
Gleymskukúrfa Ebbinghaus
Myndin sýnir hvernig minni
versnar eftir því sem lengra
líður frá því að nám átti sér
stað
Gleymskukúrfa Ebbinghaus
Gagnrýni á niðurstöður:
1.
Hann var eini þáttakandi í rannsókn.
2.
Orðleysur endurspegla ekki annars
konar merkingarbært nám
Merkustu niðurstöður: Sýndi fram á að
endurtekning eða upprifjun eru
grundvallaratriði í minni, endurheimt
er háð þeim tíma sem líður frá því að
nám hefur átt sér stað
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
18
Upphaf bandarískrar sálfræði
William James
Frumkvöðull sálfræði í
Ameríku. Fyrstur til að setja
upp tilraunastofu og kenna
sálfræði. Skrifaði fyrstu
kennslubókina. Hann taldi að
alvöru vísindi yrðu að beygja
sig undir löghyggju og að
sálfræði yrði því að láta
frjálsan vilja liggja á milli
hluta ætti hún að vera í þeim
flokki.
1842-1910
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
19
Sálmælingar og fyrstu greindarprófin
Þýskir sálfræðingar með Wundt í fararbroddi
reyndu í rannsóknum sínum að kanna eðli og
starfshætti meðvitundarinnar en skeyttu ekkert um
einstaklingamun. Sálfræði þróaðist í þá átt að menn
byrjuðu að rannsaka mun milli einstaklinga. Sir
Francis Galton ruddi þá braut. Hann var undir
áhrifum frá Darwin og rannsakaði sérstaklega
greind.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
20
Hugmyndir Francis Galton
Galton fékkst við margvísleg fræði um
ævina. Hafði mikinn áhuga á erfðafræði
og það beindi áhuga hans að sálfræði.
Samkvæmt Galton skiptu uppeldi og
umhverfi engu máli, erfðir voru allsráðandi
í mótun einstaklinga. Setti á fót
rannsóknarstofu til að rannsaka
afburðagreinda einstaklinga í Bretlandi.
Galton var fyrstur til að nota próf til að
mæla andlega eiginleika. Átti frumkvæðið
að því að beita ýmsum
rannsóknaraðferðum sem nú eru mikið
notaðar (tvíburaaðferðin). Upphafsmaður
fylgnireikninga í sálfræðilegum
rannsóknun
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
1811-1911
21
Alfred Binet og fyrstu greindaprófin
Franskur sálfræðingur.Fyrstur til að búa
til greindarpróf (1904). Frönsk
fræðsluyfirvöld fólu honum að gera
greindarpróf til að finna þá einstaklinga
sem voru sterkir í námi. Árið 1905 bjó
hann til próf ásamt Theodore Simon.
Bjuggu til aldurstengda mælistiku fyrir
greind. Árið 1911 gerðu þeir síðustu
útgáfu af prófinu. Reiknuðu út
greindaraldur barns.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
1857-1911
22
William Stern
Þýskur sálfræðingur.
Setti fram hugmyndina
um greindarvísitölu út
frá prófi Binets með
því að deila aldursstigi
(greindaraldri), sem
prófið sýndi, með aldri
próftaka, eða lífaldri.
1871-1938
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
23
Lewis Terman
Bandaríkjamaður, endurbætti
formúlu Sterns. Áðurnefnt
hlutfall er margfaldað með 100.
Lagði til að notað yrði hugtakið
IQ (intelligence quotient), sem
kallast greindarvísitala á
íslensku (GV).
Meðalgreindarvísitala er 100
(greindaraldur sá sami og
lífaldur)
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
1877-1956
24
Freud og sálgreining
Austurríkismaður og einn þekktasti
sálfræðingur allra tíma. Var talsmaður þess
að starfsemi líkamans mætti skýra út frá
efna- og eðlisfræðilegum lögmálum. Lærði
dáleiðslu hjá franska taugalækninum Jean
Martin Charcot. Þróaði aðferð sem kallaðist
frjáls hugrenningaaðferð. Hugrenningar
sjúklings gefa sálgreinanda vitneskju um
innihald dulvitundar. Með dulvitund er átt
við þær hugsanir, viðhorf, óskir, hvatir og
tilfinningar sem við höfum ekki beinan og
greiðan aðgang að. Dulvitund lykilhugtak í
kenningu Freuds.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
1856-1939
25
Freud og sálgreining
Draumakenning Freuds
Setti fram kenningu um persónuleikann
Libido – lífshvöt – dauðahvöt
Vellíðunarlögmál/Raunveruleikalögmál
Það – Sjálf – Yfirsjálf
Varnarhættir sjálfsins
Vinnuherbergi Freuds
Kenningin hefur verið gagnrýnd.
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
26
Atferlisstefnan
Edward Lee Thorndike
Upphafsmaður rannsókna í
dýrasálfræði. Happa og
glappaaðferð
Árangurslögmálið: Þær
svaranir verða tíðari sem hafa
jákvæðar afleiðingar í för
með sér fyrir dýrið, aðrar
svaranir hverfa smám saman
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
1874-1949
27
Ivan P Pavlov
Rússneskur lífeðlisfræðingur sem fyrir
tilviljun uppgötvaði einföld námslögmál
Ivan P Pavlov
Höfundur viðbragðsskilyrðinga í sálfræði.
Ein merkasta uppgötvun innan
sálfræðinnar
Taugafræðilegar skýringar á námi í
rannsóknarniðurstöðum Pavlovs
Fyrstu manna til að sýna fram á að unnt
væri að kanna eðli mannlegrar sálsýki
með rannsóknum á dýrum
1849-1936
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
28
John Watson og B.F. Skinner
Rannsóknir af þessu tagi urðu
uppsprettan að atferlisstefnunni.
Samkvæmt þessari stefnu skal
viðfangsefni sálfræðinnar vera atferli.
John B Watson
John B Watson upphafsmaður
atferlisstefnunnar.
B.F. Skinner höfundur virkrar
skilyrðingar í sálfræði. Byggir á
árangurslögmáli Thorndikes
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
B. F. Skinner
Þórður Sigurðsson
29
Hugfræði
Umbylti sálfræðinni á síðari helmingi 20. aldar
Þrjár meginástæður fyrir minnkandi vinsældum atferlisstefnunnar í
sálfræði
1. Rannsóknir á dýrum innan námssálarfræðinnar voru komnar í
ógöngur. Eðli dýra setur lögmálum skilyrðinga skorður sem taka
verður tillit til.
2. Áhrif tölvu- og upplýsingafræða
3. Skyntúlkun á tvíræðum áreitum hefur reynst erfitt að útskýra út
frá einföldum námslögmálum
Fjölbrautaskólinn
v/Ármúla
Þórður Sigurðsson
30