Barki og berkjur Barkinn greinist niður í 2 meginberkjur til sitt hvors lunga. Barki og berkjur eru styrktar brjóskbogum sem ná næstum allan hringinn. Ekkert.

Download Report

Transcript Barki og berkjur Barkinn greinist niður í 2 meginberkjur til sitt hvors lunga. Barki og berkjur eru styrktar brjóskbogum sem ná næstum allan hringinn. Ekkert.

Barki og berkjur
Barkinn greinist niður í 2 meginberkjur til sitt
hvors lunga.
Barki og berkjur eru styrktar brjóskbogum sem
ná næstum allan hringinn.
Ekkert brjósk er þó í minnstu berkjunum sem
enda í klasa af lungnablöðrum
Rásir öndunarfæranna eru
þaktar bifhærðum slímþekjuvef til varnar
óæskilegum ögnum.
Inni í lungum er einnig eitilvefur með átfrumum
sem gleypa örður úr öndunarlofti.
Öndunarflötur lungnanna er um 60 m2
Öndunarvöðvar
Eru þindin sem skilur á milli brjósthols og
kviðarhols.
Millirifjavöðvar sem liggja á milli rifbeinanna
Innöndun krefst alltaf vöðvaátaks
Eðlileg útöndun gerist án vöðvaátaks
Öflug útöndum (hnerri, snýtur, blöðruuppblástur)
þarfnast aðstoðar brjóst og kviðvöðva.
Lungu
Eru tvö, staðsett í brjóstholi
Þau eru umlukin brjósthimnum sem
eru tvöfaldir belgir, sá innri gróin utan á
lungun en sá ytri er innan á brjóstkassa,
ofan á þind og utan á gollurshúsi
Vessi er á milli himnanna sem annars
falla þétt hvor að annari
Öndunarloftið:
Er um 0.5 l í hvíld en eykst með áreynslu
Viðbótarlofti má bæta við u.þ.b. 3 l
Varalofti u.þ.b. 1.2 l má blása út eftir útöndun
Loftleif, rúml. lítri verður eftir í lungum eftir
útöndun
Hraði öndunar ræðst einkum af magni súrefnis
og koltvísýrings í blóði
Flutningur öndunarlofts:
Súrefni binst við hemoglóbin, allt að 4
sameindir í einu og flyst með blóði til frumanna.
Dökkrauð blóðkornin verða ljósrauð
Súrefni binst við myoglobin, aðeins ein
sameind og flyst til vöðva þar sem það er til vara
til að mæta snöggri áreynslu
Sjúkdómar í lungum:
Andarteppa (asthma) er krampi í sléttum
vöðvum í minnstu berkjunum og stafar oftast af
ofnæmi (sjúkleg viðbrögð ónæmiskerfisins við
framandi efni)
Lungnaþemba þegar sífellt er erfiðara er að
anda frá sé. (reykingar auka hættuna)
Krabbamein í lungum fer vaxandi hér á landi
(reykingar)