Transcript 1. kafli

Sálfræði 103
Haust 2006
Kennari: Aldís Gunnarsdóttir
1. kafli
Hvað er sálfræði?




Maðurinn hefur leitast við að skilja tilgang lífsins
og sjálfan sig svo langt sem sögur herma.
Vangaveltur um tengsl líkama og sálar má rekja
allt til Aristóteles og Platóns.
Algeng skilgreining er einhvernveginn svo:
Sálfræði er sú vísindagrein sem rannsakar atferli
og hugarstarfsemi.
Skilgreiningin endurspeglar samt ekki þá
fjölbreytni sem einkennir nútímasálfræði.


1.
2.
3.

Starfsemi heilans er nátengt sálarlífinu
og því má allt eins segja að sálfræði sé
vísindi um huga, heila og hátterni.
Sálfræði á rætur að rekja til þriggja
fræðigreina þ.e.a.s.
Heimspeki (Aristoteles, Descartes, Locke
ofl.)
Líffræði (lífeðlisfræðilegar uppgötvanir,
þróunarkenningar Darwins)
Eðlisfræði (vísindaleg vinnubrögð,
aðferðafræði= sáleðlisfræði.
Sjálfstæð fræðigrein verður til.
Fyrstu sálfræðistefnurnar




Formgerðarstefna (Wundts)= sjálfskoðun
Sálgreining (Freuds)= dulvitund og hvatir
Hlutverksstefna (andsvar Williams James
við formgerðastefnunni)=eðli og hlutverk
atferlis og hugsana
Atferlisstefnan (John Watson) =áhersla á
vísindalegar aðferðir og rannsóknir á
atferli en ekki hugarstarfsemi
Ráðandi sjónarmið í nútímasálfræði
1.
2.
3.
4.
5.

Sálgreining
Hugræn sálfræði
Atferlisstefna
Mannúðarsálfræði
Líffræðileg sálfræði
Skoða vel og kunna grein 1.1 bls 18
Vandkvæði við rannsóknir á
sálfræði

1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
Má rekja til þess að erfitt er að beyta alltaf sömu
aðferðum sökum þess hversu ólík við erum. Taka þarf
tillit til:
Umhverfisáreita
Erfðaeiginleika
Starfshátta miðtaugakerfisins
Annarra líkamlegrar starfsemi
Menningarþátta
Reynslu einstaklingsins
Persónulegra þátta á borð við greind, persónuleika og
andlegt heilbrigði.
Viðfangsefni sálfræðinga geta verið
mjög margbreytileg t.d.



Að lifa án minnis – myndin memento á að
nokkru leiti fyrirmynd í raunveruleikanum. árið
1958 var gerð aðgerð á manni til að koma í veg
fyrir alvarlega flogaveiki.
Með því að nema á brott hluta af innra borði
gagnaugablaðs í báðum heilahvelum og m.a.
Svæði sem nefnist “dreki”
Varð algerlega ófær um að flytja endurminningar
frá skammtímaminni yfir í langtímaminni.
Í hverju er andlitsfegurð fólgin?



1.
2.
Judith Langlois og Lori Roggman (1990) gerðu
hugvitsamlega tilraun til að komast að því hvers
konar andliti fólk hrífst helst af.
Settu saman myndir af ólíku fólki
Niðurstaðan var sú að okkur þykir hið dæmigerða
meðalandlit fallegast.
Fleiri dæmi um viðfangsefni sálfræðinga er að
greina athyglisbrest með ofvirkni. Þá er orðið
röskun notað sem merkir frávik frá eðlilegu
ástandi, andlegu eða líkamlegu.
Sálfræðingar sinna oft öryggismálum
(mannþáttafræði) þ.e.a.s. Til að tryggja samskipti
manns og vélar
Það eru mörg álitamál í sálfræði
t.d.

1.
2.

Eru hugtökin frjáls vilji og löghyggja
ósamrýmanleg?
Löghyggja= gengið út frá því að hegðun sé
háð orsakalögmálum og hlutverk sálfræðinnar
er að skýra þessi lögmál
Frjáls vilji= innri og ytri orsakir en fyrst og
fremst undir einstaklingnum komið hvernig
hann bregst við áreitum.
Löghyggja skiptist í tvennt í væga löghyggju
og eindregna löghyggju
Undir löghyggju og frjálsan vilja
flokkast eftirfarandi stefnur.






Eindregin
Löghyggja
Atferlisstefnan
Sálgreining
(kenningar Freuds)
Líffræðileg sálfræði
Væg löghyggja
hugfræðingar


Fjáls vilji
Mannúðarsálfræðinga
má telja talsmenn
hins frjálsa vilja
Hvort mótast maðurinn meira af
erfðum eða umhverfi?



Ásköpunarhyggja: meðfædd þekking
Reynsluhyggja: hver og einn verður að
afla sér þekkingar á heiminum. “tabula
rasa” þýðir óskrifað blað og er oft notað
þegar vitnað er í reynsluhyggju.
Skoða mynd 1.3. bls 29.
Hvort skipta erfðir eða umhverfi
meira máli við rannsóknir á
orsökum geðklofa?







Geðklofi leggst á u.þ.b. 1% manna
Einkennin eru: brengluð hugsun, ofheyrnir og
ýmsar aðrar ranghugmyndir.
Líffræðilegi þátturinn er talin vega þungt.
Margt bendir til að geðklofi sé arfgengur.
Nánir ættingjar geðklofa eru líklegri en aðrir til
að greinast með röskunina.
Áhættan stendur að nokkru leiti í hlutfalli við hve
skyldleikinn er mikill.
Sjá mynd 1.4.
Ólík sjónarmið í nútímasálfræði

1.
2.
3.
4.
5.
Nútímasálfræðingar hafa gert sér grein
fyrir að engin ein stefna flytur stór
sannleik
Líffræðileg sjónarmiðið
Atferlissjónarmiðið
Hugræn sjónarmiðið
Sjónarmið sálgreiningar
mannúðarsjónarmiðið
Líffræðilega sjónarmiðið




Líta svo á að öll sálræn starfsemi tengist virkni í
heilanum og taugakerfinu
Hefur gengt mikilvægu hlutverki í sálfræði frá
upphafi, bæði í USA og Evrópu
Tekur til þróunar og þroska heilans, skynjunar,
áhrifa geðlyfja og heilaskaða á sálarlíf sem og til
taugafræðilegra forsendna náms, minnis, máls
og hugsunar..
...á þessu sést að líffræðileg sálfræði kemur inn
á flest svið sálfræðinnar.
Atferlissjónarmiðið




Hefur orðið fyrir áhrifum frá þróunarkenningum Darwins,
kemur fram með því móti að ekki er gert ráð fyrir að
grundvallarmunur sé á atferli manna og dýra
Einkennist af strangri vísindahyggju og rannsóknir fara
gjarnan fram á tilraunastofum
Grunnlögmál atferlisstefnunnar eru
a) viðbragsskilyrðing
b) virk skilyrðing
Þær hafa veitt mikilsverðar upplýsingar um hvernig
hegðun manna og dýra mótast
Hugræna sjónarmiðið




Er í vissum skilningi horfið aftur að uppruna sálfræðinnar,
athugun á eðli og eiginleikum mannshugarins
Andsvar við þröngu sjónarhorni atferlishyggjunnar.
Hefur mestan áhuga á að rannsaka hvað gerist innra
með fólki t.d. Vitsmunarlegt ferli (hvernig við förum að
því að muna, draga ályktanir, lesa, taka ákvarðanir og
leysa hvers kyns vitrænar þrautir
Samkv, atferlissjónarmiðinu er samband á milli áreits og
svörunar það sem öllu máli skiptir en hugræna því sem
gerist þar á milli, þeirri úrvinnslu sem á sér stað í
mannshuganum frá því að áreiti verkar og þar til svörun
á sér stað.
Sjónarmið sálgreiningar





Byggist á kenningum Freuds (1856-1939)
Hann var læknir sem rannsakaði m.a. Sefsýki, er afar
sjáldgæf nú en lýsir sér í líkamlegum einkennum sem
rekja má til geðraskana
Hann taldi að sefsýki ásamt öðrum geðsjúkdómum, væri
að leita í dulvitaðri andlegri togstreitu, gjarnan af
kynferðislegum toga, sem oft mætti rekja til bernsku
einstaklingsins.
Freud var brautryðjandi á sviði sálfræði og hneiksluðu
kenningar hans marga.
Þekktastar eru kenningar hans um drauma sem fjallað
verður um í 9 kafla.
mannúðarsjónarmiðið








Leggja megináherslu á það sem þeir telja vera einstaka mannlega
eiginleika
Oft kallað þriðja aflið í sálfræði sem mótvægi við atferlishyggju og
sálgreiningu
Að þeirra mati átti sálfræði að snúast um mannlega eiginleika eins
og ást, von, sköpunargáfu og sjálfsvirðingu.
Þekktustu mannúðarsálfræðingarnir voru Carl R Roger (1902-1987)
og Abraham Maslow (1908-1970)
Hugtakið sjálfsbirting þýðir: þörf mannsins til að vaxa og nýta
hæfileika sína til fullnustu.
Mannúðarsálfræði hefur mótað siðareglur innan sálfræðinnar “að
virða einstaklinginn sem manneskju en ekki tilraunadýr”
Lögð er áhersla á einstaka mannlega eiginleika Horfið er frá
löghyggjunni og gengið út frá því að maðurinn hafi frjálsan vilja.
kemur fram með góð og gild sjónarmið en er í eðli sínu ekki mjög
vísindaleg Hér er kannski um viðhorf að ræða fremur en stefnu
Einnig hafa mannúðarsálfræðingar sett fram öflug meðferðarform
Þekktustu mannúðar
sálfræðingarnir


Carl Rogers
Samhygðarhópar


Abraham Maslow
Þarfapíramídinn
Þarfapíramídi Maslows





Sjálfsþroski
Viðurkenningaþörf
Félagsþarfir
Öryggisþarfir
Líkamlegar þarfir
VAXTAÞARFIR
GRUNNÞARFIR
Helstu undirgreinar sálfræðinnar
1.
2.
3.
4.
5.
Afbrigðarsálfræði= hegðun eða andlegt ástand sem víkur frá því
sem eðlilegt getur talist. Meginviðfangsefnin eru geðraskanir og
tilfinninga- og persónuleikaraskanir
félagssálfræði= fjallar um hvernig félagsleg áhrif móta hegðun,
viðhorf og skoðanir
Hugræn sálfræði= tekur til rannsókna á minni, hugsun, athygli,
skynjun og máli
Klínísk sálfræði og ráðgjafarsálfræði= nátengt starfi geðlækna
Líffræðileg sálfræði, réttarsálfræði, persónuleikasálfræði,
skólasálfræði, tilraunasálfræði, vinnu –og skipulagssálfræði og
þroskasálfræði.
Sigmund Freud fæddist 1856 og
lærði læknisfræði við háskólann í
Vín.

Sérhæfði sig í
taugasjúkdómafræði.

Er frumkvöðull Sálgreiningar
(Djúpsálfræði).

Sálgreining er lýsing á
starfsemi mannshugans og
aðferð til að ráða bót á
ýmiskonar taugaveiklun og
sálrænum þjáningum.
Uppbygging persónuleikans

ID
Það

Vellíðunarlögmál


EGO
Sjálf

Sáttasemjari


SUPER EGO
 Yfirsjálf


Samviska
ID, EGO OG SUPER EGO







ID
Meðfætt
0-6 mánaða
Vellíðunarlögmálið
Grunnhvatir mannsins
SUPER EGO
5 ára og uppúr
Fullkomnunarlögmálið
Samviska einstaklingsins
Dæmir ákvarðanir sjálfsins




EGO
8 mán – 5 ára
Raunveruleikalögmálið
Lítur til með frumsjálfinu
Freud taldi að vitund mannsins væri aðeins lítill
hluti af mannshuganum.

Það sem þaðið vill en yfirsjálfinu finnst
óþægilegt er gjarnan ýtt út úr vitundinni, t.d.
með réttlætingu eða frávarpi.
• Það sem er í undirvitund hefur engu að síður
áhrif á okkur og getur ráðið tilfinningum og
athöfnum.
• Slíkt gerist gjarnan með mistökum (Freudian
slip) og draumum.
Draumar sýna þó ekki beint merkingu heldur sýna þeir
svokallað “ljóst inntak”. Hið “leynda inntak” kemur
einungis fram með túlkun eða draumstarfi.


Stundum er starf sálkönnuðar kallað “sálræn
fornleifafræði”.
Kenning Freud um hið dulvitaða varð mjög þýðingarmikið
í listum og bókmenntum, svo sem hjá súrrealistum.
Margt hefur breyst frá því að Freud skrifaði
kenningu sína og í dag er togstreitan minni og
e.t.v. öðruvísi.




Í dag eru nútímasálfræðingar að mestu sammála
um að erfðir og umhverfi spili saman í
persónuleika fólks
Engu að síður eru kenningar Freuds áhugaverðar
út frá heimspekilegu sjónarmiði....
Ennþá eru til sálfræðingar sem byggja sínar
sálgreiningar eingöngu á kenningum Freuds..
....þó er það í miklu undanhaldi.