geraskanir barna

Download Report

Transcript geraskanir barna

Geðraskanir barna og
unglinga
Sálfræði 203
9.kafli
Kennari: Hildur Jóhannsdóttir
Hvað eru barnageðraskanir
• Felst í safni einkenna sem eru það
alvarleg hvað tíðni og/eða styrkleika
varðar að dagleg virkni barnsins truflast.
• Þegar ástand barns er metið skal
samkvæmt henni ávallt miða við vitrænan
og félagslegan þroska, aðstæður og
sjúkrasögu.
Helstu flokkar:
• Þroskaraskanir
– (t.d. þroskahömlun, einhverfa, málhömlun o.fl.)
• Atferlisraskanir
– (t.d. AMO, hegðunarröskun, mótþróaþrjóskuröskun)
• Lyndisraskanir
– (t.d. þunglyndi, óyndi, geðhvarfasýki)
• Kvíðaraskanir
– (t.d. félagsfælni, áfallastreita, áráttu-þráhyggja,
ofkvíðaröskun, felmtursröskun).
Úthverfar/Innhverfar raskanir
• Úthverfar eru hegðunartruflanir, þ.e. vandi
sem er mjög sjáanlegur og truflar ytra
umhverfi.
– AMO (athyglisbrestur með ofvirkni) er dæmi
um slíka röskun.
• Innhverfar eru raskanir sem trufla mest
barnið sjálft og eru oft ekki sjáanlegar
öðrum, t.d. Þunglyndi, kvíði
Hvernig fer klínísk greining fram?
• Við greiningu á barnageðröskunum hér á landi
þarf meðal annars að fara fram sálfræðilegt mat.
• Það felst í því að hegðun, hugræn ferli og
tilfinningar barnsins eru kortlögð.
• Jafnframt er nauðsynlegt að tekið sé tillit til
þroska barnsins, aldurs, kyns og menningarumhverfis.
• Við slíkt mat er mikilvægt að hafa hliðsjón af því
sem getur talist eðlilegt eða meðaltalsgeta á
viðkomandi aldursstigi.
• Formleg greining felst síðan í samantekt á
einkennum barnsins og ályktunum um orsakir og
eðli þeirra.
Hver er tilgangur klínískrar
greiningar?
•
1.
2.
3.
4.
5.
6.
•
•
Að fá
nákvæma lýsingu á vanda barnsins;
hugmynd um meðferðarúrræði;
hugmynd um batahorfur;
upplýsingar fyrir flokkun; auk þess sem hún auðveldar
samskipti sérfræðinga og
rannsóknir.
Greiningarferlið felst í því að afla upplýsinga um
margvíslega þætti frá ýmsum sjónarhornum.
Þegar um börn er að ræða er oftast byggt á
greiningarviðtali við aðstandendur, beinum athugunum
á atferli barnsins, stöðluðum spurningalistum fyrir
foreldra, kennara og barnið sjálft og loks á
sálfræðilegum prófum.
Af hverju flokkunarkerfi?
•
Almennt má segja að góð flokkunarkerfi hafi
eftirfarandi eiginleika (þau):
•
•
•
•
•
•
•
Geta stuðlað að því að orsakir geðraskana finnist.
Leggja grunninn að tungutaki sem sérfræðingar hafa
sammælst um að nota.
Hafa upplýsingagildi hvað lýsingar á geðröskunum varðar.
Auðveldara verður að meta batahorfur í bráð og lengd.
Þau eru leiðbeinandi fyrir meðferð (og í því felst
sparnaður).
Sérfræðingar geta skipst á upplýsingum með skjótari og
nákvæmari hætti.
Geta leitt til fyrirbyggjandi aðgerða. (Að hluta byggt á
Sarason og Sarason, 2002.)
DSM-IV flokkunarkerfið
• Þegar sérfræðingar greina geðraskanir nota þeir
svonefnd flokkunarkerfi.
• Tvö slík kerfi eru mest notuð í heiminum í dag.
• Annað er kerfi bandarísku geðlæknasamtakanna, skammstafað DSM-IV (Diagnostic
and Statistical Manual of Mental Disorders)
• Hitt meginkerfið er skammstafað ICD-10
(International Classification of Diseases, 10.
útgáfa) sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
gefur út.
• Þessi kerfi eru bæði notuð hér á landi og eru
byggð upp með svipuðum hætti.
DSM-kerfið
• DSM kerfið er svokallað fjölása kerfi en hver ás
um sig tekur til ólíkra sjónarmiða. Ásarnir eru í
allt fimm:
• I. ásinn snýr að klínískum einkennum og
frumflokkum raskana (svo sem
aðlögunarraskanir, kvíðaraskanir, lyndisraskanir,
geðklofi, átraskanir...) að undanskildum
persónuleikaröskunum og þroskahömlun.
• II. ásinn tekur til persónuleikaraskana og
þroskahömlunar. Báðar þessar tegundir raskana
hefjast að jafnaði á barns- og unglingsárum og
haldast fram á fullorðinsár.
DSM-kerfið
• III. ásinn segir til um almennt læknisfræðilegt ástand sem
getur varpað ljósi á líðan sjúklings (svo sem heilaskaði
eða hjartaáfall og margt fleira sem getur leitt til ástands
sem líkist geðheilsubresti).
• IV. ásinn vísar til félagslegra og sálfræðilegra þátta auk
umhverfisþátta. Hér má nefna fátækt, áföll, atvinnumissi
og ósætti innan fjölskyldu.
• V. ásinn er almennt mat á lífsfærni einstaklingsins. Við
matið er notaður kvarði á bilinu frá 0 til 100 (svokölluð
GAF-tala – Global Assessment Functioning) þar sem lág
tala merkir að viðkomandi getur verið hættulegur sjálfum
sér og öðrum en há tala stendur fyrir almennt góða
lífsfærni.
DSM kerfið
• Þannig tekur I. ásinn til frumflokka geðraskana
og einn þeirra eru raskanir sem venjulega
greinast fyrst á bernskuskeiðinu.
• Helstu undirflokkar þar eru: námsraskanir,
röskun á hreyfifærni, tjáskiptaraskanir,
gagntækar þroskaraskanir, athyglisbrestur og
atferlisraskanir, fæðu- og átraskanir í bernsku,
kækir, losunarraskanir og loks aðrar raskanir
sem tengjast bernsku- og unglingsárunum.
Gagntækar þroskaraskanir
Einhverfurófið
www.donaghyonline.com/.../spectrum/index.htm
Gagntækar þroskaraskanir
– Einhverfa
– Asperger-heilkenni
• Koma snemma fram á þroskaferlinum
• Hafa víðtæk áhrif á þroska barna
– Áhrif til langframa á:
•
•
•
•
Félagsþroska
Greindar- og málþroska
Tilfinningaþroska
Hegðun og áhugahvöt
Gagntækar þroskaraskanir
• Þroskaferill barna með þessar raskanir er
ólíkur
• Stundum koma tímabil þar sem börnin taka
nokkuð eðlilegum framförum
• Á öðrum tímum getur orðið stöðnun eða
jafnvel afturför
• Einkennin geta verið breytileg eftir aldri
– Sum einkenni birtast ekki fyrr en ákveðnum
aldri er náð
– Önnur hverfa með aldrinum
Einhverfa – hvernig lýsir hún sér?
• Skortur á augnsambandi
• Samskipti við jafnaldra þróast ekki með
eðlilegum hætti
• Skortur á frumkvæði til samskipta
• Sérkennileg viðbrögð við fólki
• Sérkennileg svipbrigði
• Það sem skortir á í boðskiptum eru oft bendingar
og látbragð, eftirherma, ímyndunarleikur og
skortur á gagnkvæmni í samræðum
Einhverfa – hvernig lýsir hún
sér?
• Auk þess eru ýmis sérkenni í tali, svo sem
ýmis konar endurtekningar og stagl,
fornafnarugl, nýyrðasmíð eða skrítin
máltjáning.
• Sérkennileg og áráttukennd hegðun getur
komið fram í þröngu eða sérkennilegu
áhugasviði, sem þróast lítið yfir tíma og
þar sem áhuginn er svo ákafur að hann
getur hindrað eðlileg samskipti við aðra.
Einhverfa – hvernig lýsir hún
sér?
• Þá er oft einnig um að ræða knýjandi þörf
til að segja hluti á ákveðin hátt og stundum
að aðrir svari sömuleiðis alltaf eins.
• Eins geta athafnir verið í óvenju föstu kerfi
og ef ekki er hægt að framkvæma þær í
ákveðinni röð veldur það uppnámi, allt frá
pirringi til bræðiskasta.
Einhverfa – hvernig lýsir hún
sér?
• Sérkennilegar, endurteknar,
handahreyfingar, eða flóknar hreyfingar
með öllum líkamanum koma við sögu,
• Einhæf eða óvenjuleg notkun hluta
• Óvenjulegur áhugi á skynáreitum.
• Eðlilegu líkamsþroski þar sem farið er í
gegnum heilstu þroskastigin á eðlilegum
tíma
• Hætta á greindarskerðingu (sjá bls. 364)
Asperger-heilkenni
• Einkenni
– breytileg eftir aldri og ástandi viðkomandi
• Koma fram í félagslegum samskiptum
• Skertri félagslegri virkni
• Sérstökum áhugamálum
• Áráttukenndri hegðun
• Blæbrigðalausum talanda og (stundum)
sérkennilegu orðavali (háfleygt mál)
• Sérkennileg líkamstjáning
• Ekki greindarskerðing og ekki skerðing á málþroska
Asperger-heilkenni
• Gjarnan koma fram einkenni annrarra
raskana, s.s.
– AMO
– Tourette (boðefnamisflæði)
– Kvíði – almenn kvíðaröskun
– Félagsfælni
– Lyndisraskanir - þunglyndi
Geðklofi
• Röskun sem leggst á hugann
• Birtingarmynd einkenna byggir á málleikni
og vitsmunaþroska
• Truflun á hreyfiþroska og málþroska er
gjarnan sem undanfari
• Ofskynjanir
• Brengluð rökhugsun
• Jákvæð einkenni – neikvæð einkenni
Geðklofi
• Jákvæð einkenni
– Ofskynjanir
• Neikvæð einkenni
– Flatar tilfinningar
– Óviðeigandi tilfinningaviðbrögð
• Í bernsku eru neikvæðu einkennin áberandi
• Jákvæðu einkennin eru einkennandi í
miðbernsku
• Á unglingsárum verða neikvæðu einkennin
áberandi
Úthverfar raskanir - atferlisraskanir
• Vel sýnilegar hegðunartruflanir
– Amo
– Hegðunarröskun
– Mótþróaröskun
• AMO – athyglisbrestur – ofvirkni – hvatvísi
• Fylgifiskar AMO
– Lyndisraskanir
– Kvíðaraskanir
– Námsörðugleikar
– Mótþróaþrjóskuröskun
– Hegðunarröskun
– Andfélagsleg hegðun
Úthverfar raskanir - atferlisraskanir
• Hegðunarröskun
– Ofbeldi
– Skemmdarfýsn
– Svik og þjófnaður
– Alvarleg brot
• Mótþróaþrjóskuröskun
– Mildari röskun
– Skapbræði
– Hlýðir ekki reglum og fyrirmælum
– Reiði – fyrtni – illgirni - hefnigirni
Innhverfar raskanir
• Snúast um tilfinningar, hugarástand og
líkamleg einkenni
• Kvíðaraskanir
– Félagsfælni
– Áfallastreita
• Þunglyndi
• Átraskanir
– Lystarstol
– Lotugræðgi
– lotuofát