PPS 5390 KB - Edvard G. Guðnason

Download Report

Transcript PPS 5390 KB - Edvard G. Guðnason

ISBAS – Raforkumarkaður
Tækifæri eða takmörkun
Edvard G. Guðnason
Staðan síðustu 3 ár á
raforkumarkaði
• Landsvirkjun er eini aðilinn sem býður
öðrum heildsölusamninga á stöðluðu
formi.
• Aðrir framleiðendur nýta sitt rafmagn
nánast allt fyrir sína smásölu.
• Skammtímaviðskipti fara fram í gegnum
síma og tölvupóst.
• Mjög fáir aðilar stunda heildsöluviðskipti
með rafmagn.
ISBAS
• Undirbúningur hefur tekið nokkuð langan
tíma.
• Það er eðlilegt að vel og vandlega sé
staðið að undirbúningnum.
• Mjög mikilvægt að undirbúningurinn sé
unninn í samstarfi við aðilana sem nýta
markaðinn.
• Landsvirkjun telur að það viðskiptakerfi
sem nota á sé nokkuð gott fyrir íslenskar
aðstæður.
Helstu tækifærin
• Fast form þarf að vera utan um viðskipti
með skammtímarafmagn, þar sem
kaupendur og seljendur mætast.
• Margir aðilar þurfa að geta tekið þátt á
jafnréttisgrundvelli.
• Gera þarf fleiri framleiðendur virka á
raforkumarkaði.
• Gera þarf kaupendur rafmagns
meðvitaða um verð á rafmagni.
Helstu áskoranir sem þarf að
yfirstíga
• Íslenski raforkumarkaðurinn er mjög lítill.
• Fáir aðilar = grunnur markaður.
• Hann hefur enga tengingu við aðra
markaði.
• Mikill stærðarmunur er á aðilum á
markaðinum.
• Nánast allt rafmagn verður líklega boðið
frá vatnsafls- og jarðgufustöðvum.
Helstu áskoranir sem þarf að
yfirstíga
• Kostnaðurinn við að taka þátt í
raforkumarkaði getur verið hindrun fyrir
litla aðila, ásamt því að skipulagður
markaður krefst meiri vöktunar.
• Fá þarf einhvern lágmarks fjölda
framleiðenda til að bjóða inn á
markaðinn.
• Jöfnunarorkumarkaður hefur verið í
gangi í þrjú ár, en eftir því sem best er
vitað hefur aðeins einn aðili boðið inn á
hann.
Ótryggt rafmagn
Er það boðlegt á ISBAS ?
• Landsvirkjun er eini framleiðandinn sem
hefur boðið ótryggt rafmagn til sölu.
• Í tvo áratugi hefur verð á ótr. r. tekið mið
af stöðunni í vatnsbúskapnum.
• Verðsveiflur hafa samt verið litlar.
• Verði ótr. r. boðið þá mun það breyta
miklu fyrir þá sem kaupa það í dag.
• Það er tímabært að breyta fyrirkomulagi
á sölu ótryggðs rafmagns.
Stóriðjurafmagn
Er það líka boðlegt ?
• Um 80 % af raforkusölunni fer til stóriðju.
• Rafmagnið er í flestum tilfellum selt með
flutningsgjaldi inniföldu.
• Samningsverð til stóriðjunotenda er byggt á
langtímaeðli samninganna og þeirra fjárfestinga sem
liggja á bak við en ekki skammtíma kostnaðarverði.
• Í sumum tilfellum er kaupendunum ekki heimilt að
endurselja rafmagnið nema gegnum framleiðandann.
• Stóriðjurafmagn yrði líklega ekki hluti af ISBAS.
Heildsölurafmagn – er það
lausnin ?
• Landsvirkjun selur um 1450 GWst í heildsölu.
• Aðrir framleiðendur nýta beint á sinn
smásölumarkað um 1400 GWst.
• Landsvirkjun íhugar að setja einhvern hluta af
sínu heildsölurafmagni á skyndimarkað, ef
virkni slíks markaðar er tryggð.
• Eru aðrir framleiðendur tilbúnir til slíks ?
• Landsvirkjun ætlar ekki að vera ein á ISBAS.
Mikilvægir þættir
• Kostnaður fyrir þátttakendur verður að vera
lágur.
• Tryggja verður að ákveðinn hluti framleidds
rafmagns fari um markaðinn.
• Opna þarf markaðinn fyrir stórkaupendum.
• Viðskiptin þurfa að vera auðveld og
gegnsæ.
• Opnunartími, verklag og samningsskilmála
þarf að móta í samráði við þátttakendur.
• Síðast en ekki síst: Til að markaður verði
virkur þarf virka kaupendur og seljendur.
Takk fyrir