Transcript Glærur
ÞJÓNUSTUSAMNINGAR OG STJÓRNSÝSLURÉTTUR Margrét Vala Kristjánsdóttir Lagadeild FYRIRLESTRAMARAÞON HR 2011 | RU LECTURE MARATHON 2011 ÞJÓNUSTUSAMNINGAR • Samningur á milli ráðuneytis eða ríkisstofnunar sem verkkaupa og einhvers verksala um tiltekna þjónustu • Getur verið þjónusta sem verkkaupi þarf vegna sinnar eigin starfsemi eða þjónusta sem ríkinu er ætlað að veita almenningi eða fyrirtækjum • Almenn heimild í 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins til að gera slíka samninga • Verksalinn getur verið einkaaðili. www.hr.is REGLUR STJÓRNSÝSLURÉTTAR • Stjórnsýslulög nr. 37/1993 – Gilda þegar stjórnvöld taka stjórnvaldsákvarðanir • Meginreglur stjórnsýsluréttar – Sem hafa víðara gildissvið, þ.e. ekki bundnar við stjórnvaldsákvarðanir • Skiptir þá máli gagnvart notanda þjónustunnar að einkaaðila hefur verið falin framkvæmd hennar? www.hr.is 30. GR. FJÁRREIÐULAGA • 2. mgr. 30. gr.: – “Einkaaðila verður þó ekki með samningi skv. 1. mgr. falið opinbert vald til að taka ákvarðanir um réttindi og skyldur manna nema sérstök heimild sé til þess í lögum. • Ef einkaaðilum er falið vald til að taka stjórnvaldsákvarðanir þá eru þeir bundnir af reglum stjórnsýslulaga www.hr.is FYRIRMÆLI Í LÖGUM • Stundum tekið fram í lögum að einkaaðili eigi að taka stjórnvaldsákvörðun og/eða að stjórnsýslulög gildi um ákvarðanir hans um réttindi og skyldur notenda viðkomandi þjónustu • Hvað ef heimildin til töku stjórnvaldsákvarðana er ekki orðuð í lögunum? www.hr.is HVERNIG SKÝRUM VIÐ ÞETTA ÁKVÆÐI? • 2. mgr. 30. gr. – “Einkaaðila verður þó ekki með samningi skv. 1. mgr. falið opinbert vald til að taka ákvarðanir um réttindi og skyldur manna nema sérstök heimild sé til þess í lögum. – Séu slíkir samningar gerðir skulu ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.” www.hr.is NIÐURSTÖÐUR • Heimild til töku ákvarðana um réttindi og skyldur notenda þjónustu samkvæmt þjónustusamningi þarf ekki að vera skilyrðislaust orðuð í lagatextahún getur verið þáttur í heimildinni til að fela einkaaðila verkefna þegar augljóst er að taka slíkra ákvarðana er nauðsynlegur þáttur í framkvæmd viðkomandi verkefnis. • Þótt svo sé ekki þá gilda a.m.k. meginreglur stjórnsýsluréttar um stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér, sbr. 2. mgr. 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins. www.hr.is