Transcript ARTkynning
ART-Kynning Bjarni Bjarnason Hugmyndafræðin ART kemur upphaflega frá USA og eru höfundar þessa módels þeir Arnold Goldstein, Barry Glick og John C. Gibbs. Þeir byggja ART-þjálfunina á ólíkum straumum og stefnum úr sálarfræðinni Með því að þjálfa færni í gegnum hlutverkaleik og búa til líklegar aðstæður í mismunandi umhverfi þá gefum við einstaklingnum meiri möguleika á að geta notað færnina. Upphaflega var módelið búið til fyrir afbrotaunglinga og átti prógrammið að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldishegðun. Hvað er ART ? • ART stendur fyrir Aggression Replacement Training • ART er fastmótað, uppeldisfræðilegt þjálfunarmódel sem hefur það markmið að fyrirbyggja ofbeldi og kenna aðrar leiðir til að leysa samskipta-, tilfinningaog hegðunarvanda. ART á Íslandi • Hófst á Íslandi vorið 2006 • Í dag eru 45 kennarar með réttindi til að þjálfa ART og 26 leikskólakennarar í námi. • Á Suðurlandi er ART í 13 skólum og 9 leikskólum. • Markmiðið er að ART verði í öllum grunnskólum og leikskólum– fyrir alla • Mikill áhugi á þessari þjálfun á íslandi: • Sunnlendingar í fararbroddi. Í ART er unnið með: • Félagsfærni • Sjálfsstjórn • Siðferðisvitund • Rannsóknir hafa sýnt fram á að með því að vinna samhliða með þessa þrjá þætti þá næst betri og varanlegri árangur Félagsfærni: • Nemandinn fær verkfæri í hendurnar til að leysa ýmiskonar aðstæður. • Nemandinn lærir hvað hann á að gera í ákveðnum aðstæðum. • Unnið út frá hegðun nemandans. Sjálfsstjórn: Nemandinn lærir að þekkja tilfinningar sínar. Nemandinn lærir leiðir til að koma í veg fyrir að missa stjórn á sjálfum sér. Unnið út frá tilfinningum nemandans. Siðferðisþroski: Nemendur þjálfaðir í að greina rétt frá röngu. Unnið í gegnum klípusögur. Skotakort Grunnþjálfun í ART • fer helst alltaf fram í sömu kennslustofunni – ARTstofu • regluleg þjálfun úti í raunverulegum aðstæðum þegar nemandinn er búin að læra að nota ákveðna færni. • stærð hópsins er 3-8 nemendur. • tveir þjálfarar í hverum tíma, einn aðalþjálfari og einn aðstoðarþjálfari. Hlutverk þeirra eru alveg skýr. • Þjálfarar tala 20% af tímanum, nemendur tala 80% af tímanum. • Hópurinn setur sér reglur í upphafi og þeim er fylgt eftir. Hlutverk þjálfara • • • • • Aðalþjálfari: Skipuleggur, undirbýr og stýrir tímanum Deilir út hlutverkum á nemendur Fylgir eftir að farið sé eftir settum reglum Skráir upplýsingar og skýrslu eftir tímann • • • • • • • • Aðstoðarþjálfari: Styður og leiðbeinir í hlutverkaleikjum Situr í hópnum Hvetur með jákvæðri styrkingu Styður við aðalþjálfarann Tekur að sér órólega nemendur (“walk and talk”) Spyr spurninga sem honum finnst vanta í umræðuna Hjálpar nemendum sem eru til baka og taka ekki frumkvæði ART-þjálfun fer fram 3x í viku. Hver liður er því kenndur einu sinni í viku. Leikskólar eru með hvern lið í eina viku í einu Grunnþjálfunin er 12 vikna námskeið. Það er svo mat þjálfara hvort fleiri vikur þurfi til að þjálfa upp þá færni sem kennd hefur verið. Heimaæfingar og verkefni eru hluti af þjálfuninni. Skipulag stofu Tafla, flettitafla, plaggöt, hópreglur, Aðalþjálfari Pláss fyrir leiki Aðstoðarþjálfari Bekkjar ART Bekk skipt í tvo hópa Helmingur samkvæmt stundatöflu, hinn í ART Skipt eftir 20 mínútur ART fer fram þrisvar í viku Grunnþjálfun tekur 12 vikur Nemendur fá heimaverkefni Hópur setur sér reglur í upphafi og fer eftir þeim Skipulag stofu Tafla, flettitafla, plaggöt, hópreglur, Aðalþjálfari Pláss fyrir leiki Nemendur í ART Aðstoðarþjálfari Nemendur að vinna samkv. stundatöflu Tæki og tól • • • • • ART-mappa Myndbandsupptökuvél Ljósmyndir Plaköt Tússtafla AÐ BÚA TIL MYNDAFLÆÐI Færni 2: Að biðja um hjálp Hér er dæmi um myndaflæði Að biðja um hjálp 1. Spyrja sjálfan sig: ”Get ég gert þetta ein?” Bólutal: ”Hmmm. Get ég þetta ein?” 2. Ef ekki, réttu upp hönd 3. Bíddu. Segðu við sjálfa þig: ”Ég veit að ég get beðið án þess að tala." Ég Ég veitveit að ég að getég beðið get án þess að tala. beðið án þess að tala 4. Biðja um hjálp á kurteislegan og vingjarnlegan hátt Fyrir hverja er ART? • • • • ART hentar flestöllum börnum ART er fyrir unglinga ART er fyrir foreldra ART-þjálfun hefur reynst áhrifarík fyrir einstaklinga með einhverfu Virkar ART? • Já, ART er SMART • Bandarískar og norrænar rannsóknir sýna fram á að ART-þjálfun dregur úr líkamlegu og andlegu ofbeldi. • ART-þjálfun styrkir og eflir félagsfærni, sjálfstraust og siðferðisþroska. • Nemendur geta tekið á aðstæðum sem þeim áður leið illa í og kom þeim oft í vanda og/eða vanlíðan, þeir verða öruggari með sig og verða sjálfstæðari og ánægðari eftir markvissa ART-þjálfun Félagsfærni Listi með 50 færniþáttum Í hverri færniþjálfun eru ákveðin skref sem nemandinn lærir í gegnum hlutverkaleik Til er tékklisti yfir alla færniþættina. Hægt er að leggja hann fyrir nemendur, foreldra og kennara til að sjá hvar þörfin er mest Færni 8: Að hrósa Skref • Finndu út hvað þig langar að segja við hina manneskjuna. • Ákveddu hvað þú segir. • Finndu góðan stað og stund. • Hrósaðu á vingjarnlegan hátt. Aðferðir í færniþjálfun • • • • Í færniþjálfun eru notaðar fjórar aðferðir eða leiðir til þess að læra Sýnikennsla Hlutverkaleikir Endurgjöf Yfirfærsla Rammi fyrir tíma í félagsfærni • Nemendur mæta í ART-stofu og heilsa þjálfara með ART-kveðju og stuttu spjalli. • Stutt upprifjun á síðasta félagsfærnitíma, tekið við heimaverkefnum. • Aðalþjálfinn segir frá þeirri færni sem á að þjálfa í dag og fer yfir skrefin á töflu, plakati, myndbandi eða öðru sem hann vill nota. • Þjálfarar sýna færnina í skrefum. • Hlutverkaleikur fer fram með nemendum. Leikarar fara afsíðis með þjálfara og undirbúa sig. • Áhorfendur fá hlutverk í endurgjöfinni. • Leikrit fer fram. • Endurgjöf. • Hlutverkaleikur endurtekinn með öðrum leikurum. • Endurgjöf á hlutverkaleik. • Heimaverkefni sett fyrir. • Ljúka þjálfunartímanum á jákvæðan hátt, ef til vill með leik. • Vinahringur. Reiðistjórnun / Sjálfstjórnun Reiðistjórnun 1.tími Reiðistjórnun 1.tími • • • A = Það sem olli vandamálinu/reiðinni B = Hvaða gerðir þú? (Viðbrögð þín við A - hegðun) C = Hverjar voru afleiðingar? (Bæði fyrir þig og aðra) A = Það var búið að læsa skólastofunni þegar ég kom inn úr frímínútum, þannig að ég komst ekki inn. B = Ég sparkaði í hurðina og öskraði C = Ég fékk ekki að koma inn í tímann Reiðistjórnun 2. tími – Pirringslistar og kveikjur. Pirringslistar/Böggbók: Nafn________________ Dags.______________ Hvenær? Morgun Hvar varst þú? Eftirmiðdag Kvöld □ □ □ Heima □ Í skólastofunni □ Úti Í leikfimi □ □ Á ganginum □ Í fatahenginu □ Á bókasafninu □ Annað □ Hvað gerðist? Stríðni Slagsmál Rifrildi □ □ □ Einhver tók eitthvað Ég gerði eitthvað rangt Annað □ □ □ Hver? Vinur □ Foreldri □ Kennari □ Bróðir/Systir Aðrir □ □ Hvað gerðist? Hvernig leið þér eftir á? Glöð/glaður Ágætlega □ Hvernig gekk þér að hafa stjórn á þér? □ Döpur/dapur □ Mjög vel □ Frekar vel □ Reið/ur Hrædd/ur □ □ Allt í lagi □ Frekar illa □ Mjög illa □ Kveikjur Reiðistjórnun 3. tími – vísbendingar og reiðidemparar Reiðidemparar Djúp öndun Að telja áfram eða aftur á bak t.d. frá 1 að 20 eða frá 20 að 1. Skemmtilegar/góðar minningar sem hafa róandi áhrif Reiðimælir Hvað gerir þig reiða/n? mjög reið/reiður reið/reiður örg/argur Hvað gerðir þú? Siðferðisþjálfun Siðferðisþjálfunin byggir á tveimur aðalaðferðum: Rökræður um siðferðisleg gildi (klípur) Félagsleg ákvarðanataka (”as you think so you act”) Með tilvísun til Lawrence Kohlberg og hans nálgun á hugrænni þróun siðferðilsegrar rökleiðslu: Kohlberg • skilgreindi sex stig á þróun siðferðislegrar rökleiðslu. Fyrstu fjögur eru: Refsing-hlýðni Sá sterki hefur rétt fyrir sér. Ef þú gerir eitthvað af þér, er það allt í lagi bara ef enginn sér til þín og þér er ekki refsað. Ef þér er refsað þá er það refsingin sem er einu mistökin. Einstaklingur á fyrsta. stigi skilur ekki siðferðislega hugsun sem er á bak við reglur. Notar oft klisjur eins og maður á ekki að ljúga, án þess að skilja hvað það þýðir. Sér bara eitt viðhorf í einu. Best að tileinka sér viðhorf þess sem er líkamlega sterkur. Kohlberg 2. Hjálpleg afstæðishyggja. Ef ég gef þér eitthvað, hvað fæ ég þá í staðinn. Siðferði er kaup og sala. Ég gerði þetta fyrir þig og þá átt þú að gera eitthvað fyrir mig. Einstaklingur á stigi tvö spyr sig, hvað græði ég á þessu áður en hann hjálpar öðrum. Er upptekinn af sjálfum sér (sjálfhverfur), á auðveldara með að sjá það sem er gert á hans hlut en það sem hann gerir öðrum. Kohlberg 3. Góði drengurinn-góða stúlkan. Við eigum að vera góð við hvort annað. Einstaklingur á stigi 3 sýnir öðrum tillitssemi og umhyggju og upplifir “við tilfinningu”. Leitast við að hafa jákvæð áhrif svo aðrir sjái að hann/hún hafi góðan tilgang, þar með getur hann/hún hugsað jákvætt um sig sjálfa/n. Þankagangurinn á stigi þrjú er að þú áttar þig á hversu mikilvægt og dýrmætt lífið er. Aftur á móti geta einstaklingar á þessu stigi verið mjög uppteknir af því hvað öðrum finnst um þá. Það getur verið þeim til trafala í ákvarðanatöku í erfiðum siðferðislegum aðstæðum. Kohlberg 4. Lög og reglur. Það verða að vera reglur í samfélaginu. Hræðsla við stjórnleysi, ringulreið og óeirðir. Það er mikilvægt í samfélagi að fólk virði rétt hvors annars og taki ábyrgð á gjörðum sínum. Að sinna skyldum sínum er tákn um góðan persónuleika. Við erfiðar aðstæður getur maður þurft að vera óvinsæll til þess að halda heiðarleika og sjálfsvirðingu. Hugsunin á bakvið stig fjögur snýst um siðferðislegar reglur og virðingu fyrir réttindum og ábyrgð sem er grundvöllur samfélagsins. Stig fjögur er í raun viðbót við stig þrjú. 1. Dreifið sögunni. Lesið hana eða látið einn úr hópnum gera það. 2. Takið saman aðalatriðin og farið yfir þau 3. Fáið fram skoðanir, lausnir og hugsanagang hópmeðlima 4. Skerið úr með handauppréttingum (tímabundinn dómur) 5. Skiptið hópnum í tvennt, hvor hluti með einn þjálfara 6. Aðstoðið hópana við að laga og fínpússa rökin sín 7. Veljið talsmann sem skal leggja fram rök hópsins 8. Skiptið töflunni upp í tvennt og skrifið rök hópanna á sinn hvorn helminginn 9. Stýrið umræðunum (hópmeðlimir geta fengið það hlutverk til skiptis) 10. Vinnið að því að allir verði sammála eða þar til báðum hópum finnst þeir hafa komið sínum skoðunum á framfæri á góðan hátt. Klípusaga Tomma Tommi, Kári, Rakel og Lísa fóru að stela káli úr garðinum hans Jóa. Þau voru með mörgum öðrum krökkum og allir lofuðu að kjafta ekki frá hinum. Þegar Tommi kemur heim eru mamma og pabbi reið. Jói var búin að hringja í þau af því að hann sá til krakkanna og þekkti Tomma, Kára, Rakel og Lísu úr hópnum. Mamma og pabbi vilja að Tommi segi þeim hverjir hinir krakkarnir voru! 1. Á Tommi að segja frá því hverjir voru með? Segja frá Ekki segja frá Veit ekki Það voru nokkrir af stóru strákunum sem áttu hugmyndina af því að fara að stela káli. Tommi, Kári, Rakel og Lísa fóru bara með. 2. Á Tommi að segja frá því hverjir voru með? Segja frá Ekki segja frá Veit ekki Mamma og pabbi hans Tomma segja að það verði að borga Jóa peninga. Kálgarðurinn er mikið skemmdur og búið að brjóta margar kálplöntur. Tommi, Kári, Rakel og Lísa verða sjálf að borga skemmdirnar með vikupeningunum sínum. Ef Tommi segir frá því hverjir hinir voru þá þurfa þau ekki að borga eins mikið og ef hann segir ekki frá. 3. Á Tommi að segja frá því hverjir voru með? Segja frá Ekki segja frá Veit ekki