Snorri Sturluson

Download Report

Transcript Snorri Sturluson

Slide 1

Snorri Sturluson
Kirsten Lybæk Vangsgaard, 2002.


Slide 2

Inngangur


Í þessu verkefni verður fjallað um ævi
Snorra Sturlusonar. Hann er þekktur
víða í heiminum fyrir skáldskap sinn. En
hann er einnig kunnugur fyrir að vera
mikill höfðingi og auðugur maður. Talið
er að hann sé einn af frægustu
Íslendingum sem hafa verið uppi fyrir
utan rithöfundinn Halldór Laxnes.


Slide 3

Ætt og uppruni


Snorri Sturluson
fæddist 1178 eða
1179 að Hvammi í
Dölum. Faðir hans
hét Sturla Þórðarson
og var kallaður
Hvamms-Sturla.
Móðir Snorra hét
Guðný Böðvarsdóttir.


Slide 4

Snorri og systkin hans


Faðir Snorra var þrígiftur og átti samtals
sjö börn, en alsystkin Snorra voru fjögur
og hétu:





Sighvatur
Helga
Vigdís
Þórður


Slide 5

Ættartré yfir foreldra og systkin
Snorra Sturluson

S turla S igh va tsson
~
G u ðn ý B öð v arsdó ttir

S ighv atur

Þ órður

V igd ís

H elga


Slide 6

Jón Loftson og Snorri



Þegar Snorri var
þriggja ára var hann
settur í fóstur til
Jóns Loftssonar í
Odda á
Rangárvöllum.


Slide 7

Snorri í fóstri


Ástæðan fyrir að Snorri var settur í
fóstur hjá Jóni var að Sturla - faðir
Snorra – lenti í erfðadeilu.
Ágreiningurinn var mikill og Jón
Loftsson var fenginn til að dæma í
málinu. Dómurinn var ekki Sturlu í hag
og sem bót bauðst Jón Loftsson til að
taka Snorra í fóstur.


Slide 8

Snorri í fóstri, frh.




Sturla var sáttur við þetta fyrirkomulag vegna
þess að á þeim tíma var talið að sá sem setti
barn sitt í fóstur til annars mann væri meiri
maður en hinn sem tók barnið í fóstur. Tilboð
Jóns Loftssonar var þá mikið virðingar- og
vináttumerki.
Einnig má búast við að Sturla vissi að Snorri
mundi fá góða bóklega menntun vegna þess
að Jón Loftsson var lærður og vitur maður.
Snorri ólst upp í Odda til 19 ára aldurs.


Slide 9

Snorri kvænist




Árið 1202 giftist Snorri Herdísi Bersadóttur frá
Borg á Mýrum. Herdís var rík kona og með
henni fylgdi goðorð föður Herdísar. Á þeim
tíma gátu konur ekki verið goðar og þess
vegna kom goðorðið í hlut eiginmannsins
hennar - Snorra.
Þannig varð Snorri ríkur og fékk goðorð sem
hann hélt eftir að hann skildi við Herdísi.


Slide 10

Börn Snorra og Herdísar
S norri

og
H e rd ís

H allbe ra

Jó n m urtur


Slide 11

Snorri kvænist aftur




Snorri kvæntist aftur og þá einni ríkustu
konum Íslands – Hallveigu Oddsdóttur í
Rangárþingi.
Þau eignuðust engin börn saman.


Slide 12

Börn Snorra utan hjónaband
S no rri S turluson

Ing ibjörg

Þ órd ís

Ó ræ kja


Slide 13

Veldi Snorra Sturlusonar


Ríki og völd Snorra óx
með tímanum og hann
jók vald sitt þegar hann
árið 1206 tók við
kirkjustaðnum í
Reykholti. Einnig lét
Þórður Böðvarsson
(móðurbróðir Snorra)
Snorra hafa hálft
goðorð sitt í Borgarfirði.
Síðar náði Snorri öllu
goðorðinu og þannig
náði hann völdum yfir
Borgarfirði.


Slide 14

Veldi Snorra Sturlusonar vex




Snorri hélt áfram að bæta við veldið
sitt. Hann gerði það meðal annars með
því að gifta dætur sínar ríkum
höfðingjum.
Dætur Snorra: Hallberu, Þórdísi og
Ingibjörgu.


Slide 15

Hjónabönd dætra Snorra
S no rri S turlus on

H allbe ra
~

Þ órd ís
~

Ing ibjörg
~

1 . Á rni óreiða
2 . K olb ein n un gi

Þ orv a ldur
V atn sfirðing ur

G is s ur
Þ o rv ald ss on


Slide 16

Skúli jarl og Snorri Sturluson




Þegar Snorri var orðinn
mikill höfðingi fór hann
til Noregs. Hann bjó hjá
Skúla jarli og þeir urðu
miklir vinir.
Skúli jarl var mikill og
voldugur maður vegna
þess að hann var settur
til að stjórna Noregi.
Þetta hlutverk hlaut
hann vegna þess að
konungurinn, Hákon
Hákonarson var barn að
aldri.


Slide 17

Snorri gerist hirðmaður
Noregskonungsins


Hákon konungur
vildi ná Íslandi undir
Noreg og reyndi að
fá Snorra til að vinna
það verk. Hann
gerði Snorra að
hirðmanni sínum og
við það jókst virðing
Snorra Sturlusonar.


Slide 18

Deilur milli norskra kaupmanna og
nokkurra Íslendinga




Meðan Snorri var í Noregi urðu illdeilur milli
norskra kaupmanna á Íslandi og nokkurra
Íslendinga. Ófriðurinn endaði með að norsku
kaupmennirnir voru drepnir. Skúli jarl ætlaði
að með her á skipum til Íslands og þvinga
Íslendinga til að láta kaupmenn í friði.
Snorra leist ekki á það og fór til Íslands með
boð frá konungnum og Skúla jarli um að
íslensku höfðingjarnir skyldu fara, einn og
einn, til Noregs og gerast hirðmenn
konungsins.


Slide 19

Sturla Sighvatsson




Snorri Sturluson reyndi ekki að fá Ísland undir
Noreg. Það varð til þess að Hákon konungur
og Skúli jarl gerðu Sturlu Sighvatsson að
hirðmanni þegar hann eitt skipti var í Noregi.
Sturla lofaði að koma Íslandi undir vald
Hákonar.
Sturla var iðinn við að reka erindi konungsins
og fékk aðstoð föður síns – Sighvats.


Slide 20

Bardaginn á Örlygsstöðum




Snorri vildi ekki
berjast við bróður
sinn né bróðurson
og flúði til Noregs.
Í Noregi frétti Snorri
af falli Sturlu og
Sighvats á
Örlygsstöðum í
Skagafirði.


Slide 21

“Út vil ek”


Hákon konungur
bannaði öllum
íslendingum að fara
frá Noregi en Snorri
óhlýðnaðist og
sagði: “Út vil ek”.
Með hjálp Skúla jarls
komst hann úr landi.


Slide 22

Skúli jarl – vinur Snorra og óvinur
Hákonar konungs




Skúli jarl hjálpaði Snorra að komast til
Íslands. Það var áætlun Skúla að gera
Snorra að jarli yfir Íslandi og hans
manni þar.
Skúli var að undirbúa uppreisn gegn
Hákoni konungi en Hákon komst að því
og lét drepa Skúla jarl.


Slide 23

Gissur Þorvaldsson – bandamaður
Hákons konungs



Hákon konungur sendi
bréf til Gissurar
Þorvaldssonar um að
hann ætlaði að
handtaka Snorra vegna
þess að Snorri fór til
Íslands án leyfis.


Slide 24

Fall Snorra Sturlusonar


Gissur hélt mjög á
lofti þessu
konungsbréfi og fór
með fjölmennt lið til
Reykholts nótt eina í
september 1241.
Ekki varð fólk vart
við aðförina enda
fólk sofandi.


Slide 25

Eigi skal höggva


Réðst þá Gissur inn í
bæinn en Snorri gat
falið sig. Þóttist þá
Gissur ætla að sættast
við Snorra ef honum
væri vísað á hann.
Prestur vísaði honum á
Snorra. Maður var
settur til að vega að
Snorra en Snorri sagði
“Eigi skal höggva”. Eftir
það var honum veitt
banasár.


Slide 26

Endalok þjóðveldisins



Tuttugu árum eftir fall Snorra
Sturlusonar lauk þjóðveldinu og
Íslendingar gengu undir
Noregskonunga.


Slide 27

Skáldskapur Snorra
Sturlusonar


Eins og nefnt í
upphafi var Snorri
einn þekktasti
rithöfundur
Íslendinga. Auk
Íslendingasagna eru
ritverk hans: Edda,
Heimskringla og
Egils saga.


Slide 28

Skáldskapur Snorra
Sturlusonar






Heimskringla segir sögu
Noregskonunga frá öndverðu
til 1100.
Edda er kennslubók í
skáldskap og skiptist í:
Skáldskaparmál, Háttatal og
Gylfaginningu.
Egils saga Skallagrímssonar,
Egla er saga Egils og þar er
varðveittur skáldskapur
hans. En hann var líka eitt
mesta skáldið sem ort hefur
á norrænni tungu.


Slide 29

Niðurlag/samantekt



Hér eigið þið svo að koma með eigin
skoðanir og athugasemdir um verkefnið.


Slide 30

Heimildir
1.

2.

3.

Alfræði unga fólksins: fróðleiksnám
(1994) (bls. 478) Reykjavík. Örn og
Örlygur.
Gunnar Karlsson. (1993) Sjálfstæði
Íslendinga. (bls. 57-79). Reykjavík.
Námsgagnastofnun.
Ingólf Björgvin Kristjánsson. (án árs).
Snorri Sturluson og sturlungaöldin.
http://www.skolavefurinn.is
(4.9.2002)


Slide 31

Heimildir, frh.






Jónas Jónsson. (án árs). Íslands Saga.
(bls. 137-139 og 151-152). Reykjavík.
Ríkisútgáfa.
Söguatlas. Frá öndverðu til 18.
aldar. (bls. 96-97). (1991). Reykjavík.
Iðunn.

Vefur um Snorra Sturluson
http://www.fva.is/~harpa/forn/snorri/
snorris.html