Krafan um ábyrgð bænda á búfé, erfiðleikar

Download Report

Transcript Krafan um ábyrgð bænda á búfé, erfiðleikar

Ærlegir
bændur.....
......axli ábyrgð!!
Grágás
• Í Landabrigðisþætti Grágásar er að finna
ákvæði um landvernd, nýtingu skóga,
landspjöll og ítölu búfjár í haga og afrétti.
• Fjáreiganda bar að koma í veg fyrir að fé færi
inn á land sem varið var lýriti, ellegar borga
skaðabætur (auvislabætur), „en
fjörbaugsgarð er fimm aura skaða gerir“.
• Í Grágás er lagt blátt bann við reka fé sitt í
annars manns land eða skilja það eftir „svo að
hann vill að þangað gangi“ þótt landið hafi
ekki verið varið lýriti.
Grágás
• „Ef maður rekur fé sitt í annars
manns land eða lætur reka, svo að
hann vildi annars eigin beita og
verður af því fimm aura skaði eða
meiri, og varðar það
fjörbaugsgarð. En ef kúgildis skaði
verður eða meiri, þá varðar
skóggangur þótt hinn hafi eigi lýriti
varið landið“.
Jónsbók
• Magnús konungur lagabætir stóð
fyrir því að Jónsbók var lögtekin á
Íslandi á 13. öld. Í landsleigubálki
Jónsbókar eru ákvæði sem eiga
að stemma stigu við beit á landi
annarra.
• Það á að bæta fyrir beit á landi
sem er lögfest eign annarra.
Egilssaga
• Egilssaga
– “Steinarr var dæmdur til að láta laust
land sitt og hafa eigi fé fyrir”
Skógræktarævintýri á Héraði.
• 1985 hélt riðan innreið sína á Héraðið.
– Hvað var til ráða ef við ætluðum að sitja
jarðir okkar áfram ?
• Í Fljótsdal og á Völlum var að vaxa
alvöru timburskógur
– 1990 voru lög um Héraðsskóga samþykkt frá
Alþingi
– Flestir þáttakenndur í Héraðsskógum voru
sauðfjárbændur
Girðingarmál
• Lög nr. 6 1986.
– 33. gr. Nú verður ágangur úr einu heimalandi í annað, og
getur sá er fyrir verður, kært til hreppstjóra. Stafi ágangurinn
af búfé, sem vanrækt hefur verið að reka á fjall eftir
fyrirmælum fjallskilanefndar, ber hreppsnefnd að sjá um,
að eigendur reki fé til afréttar. Vanræki þeir það, lætur hún
reka á þeirra kostnað. Stafi ágangur hinsvegar af búfé sem
leyfilegt er að hafa í heimahögum, ber sveitastjórn að láta
smala ágangsfénaði þangað sem hann á að vera, á
kostnað eigenda nema annað sé ákveðið í
fjallskilasamþykkt.
– Sinni sveitastjórn ekki skyldum sínum skv. 1. málsgrein að
mati lögreglustjóra skal hann láta smala ágangsfénaði á
kostnað eigenda.
Girðingar
• Héraðsskógar hafa lagt í mikinn
kostnað vegna girðinga
– 274 km
– Beinn kostnaður héraðsskóa 70
milljónir
– nálgæt 10% af heildarveltu
Héraðsskóga
– Fleiri bera kostnað!
Girðingar
• Lög nr. 6 1986.
– 34. gr. Gangi búpeningur í engi, tún garðlönd eða
önnur afgirt svæði og valdi tjóni, skal eigandi gjalda
ábúanda bætur. Sé um endurtekinn ágang sama
búprnings að ræða, getur ábúandi sett hann inn og
gert eganda aðvart, enda hafi hann áður skorað á
eiganda að afstýra frekari ágangi. Skal eiganda
tilkynnt um innsetninguna samdægurs. Vitji eigandi
eigi hins innsetta búpenings innan tveggja
sólarhringa og greiði uslagjald samkvæmt mati
tveggja manna er hreppstjóri nefnir til, má krefjast
nauðungarsölu á fénu án þess að frekari áskorunar til
eigenda sé þörf. Söluverð þess að frádregnu
uslagjaldi og kostnaði greiðist búfjáreiganda.
Girðingar
• 35. gr. Sé búpeningur settur inn,
skal þess gætt að, að hann sé ekki
í svelti. Ef innsettur fénaður ferst
eða verður fyrir slysi, greiðir sá er
inn setur, eiganda bætur.
Hefðirnar krefjast
• Hangikjöt á jólum
• Súrmat á þorrablótum
• Saltkjöt á sprengidag
• Grillkjöt á góðviðrisdögum
• Stöku sinnum kjötsúpu
Skjólbelti
Réttarbót Eiríks konungs 1294.
5. gr. Full skaðabót sal greiðast fyrir beit
töðu, akra og engja, þótt eigi sé löggarður
um.
Gagnstæðir pólar?
• Ég segi nei!
– Beitaskógur
– Ákvörðunarréttur eiganda
– Sparisjóðsbók – framtíðarinnar
Með lögum skal
land byggja