Söguskoðanir og sögufalsanir

Download Report

Transcript Söguskoðanir og sögufalsanir

Söguskoðanir og
sögufalsanir
Hannes H. Gissurarson
Sagnfræðingafélagið 8. nóvember 2011
Ólíkar söguskoðanir
• Einokunarverslunin danska: Jón Aðils eða Gísli
Gunnarsson?
• Franska stjórnarbyltingin: Burke, Tocqueville og Marx
(að ógleymdum Móðuharðindunum)
• Verslunarfrelsi á Stóra-Bretlandi: Spurning Stiglers
• Norðurálfuófriðurinn mikli: Skot í Sarajevo, barátta
um nýlendur eða ófyrirséðar afleiðingar?
• Ástandið: Kvenfrelsi gegn karlaveldi
• Kalda stríðið: Togstreita risavelda eða andóf við
kommúnisma?
Raddir hinna mállausu
• Chateaubriand: „Við hina djúpu þögn
undirgefninnar, þar sem ekkert heyrist nema glamrið
í hlekkjum þrælsins og hvísl uppljóstrarans, allir skjálfa
af ótta við harðstjórann og sami háski er að vera í
náðinni hjá honum og vekja óánægju hans, birtist
sagnfræðingurinn … “
• Einar H. Kvaran: „Eg trúi því, að þeir, sem níðast á
smælingjum, séu andstyggð Guðs. Eg trúi því, að
þeim, sem fara illa með lítil börn, sem þeim er trúað
fyrir, verði fleygt út í ystu myrkur.“
• Dostojevskíj og Acton lávarður
Makleg málagjöld
• Popper um vísindi: Berjafatan og kastljósið
• Sagnfræðin ekki hlutlaus, en óhlutdræg
• Sagnfræðin leggur ekki að jöfnu Churchill og Hitler
1940, Bandaríkin og Ráðstjórnarríkin í kalda stríðinu,
byssu í höndum lögregluþjóns og glæpamanns,
sjálfsvörn og yfirgang
• Dómur sögunnar þarf að geta verið fordæming
• Ekki felldur yfir hópum, heldur einstaklingum vegna
gerða þeirra
• Helförin
• Hitler: „Wer redet heute noch von der Vernichtung
der Armenier?“
Sögufalsanir
• Þeir, sem afneita helförinni, eru sekir um sögufölsun
• Þeir óvirða fórnarlömbin og ryðja braut nýjum
ofsóknum
• Nasisminn fordæmdur og fordæmanlegur
• Glæpsamlegt í Noregi að hafa verið skráður í
nasistaflokkinn þar eftir hernámið
• Glæpsamlegt víða í Evrópu að efast um helförina
• Mannvonskan hversdagslega (Arendt)
• Böðlar Hitlers (Goldhagen)
• Hvað um kommúnismann?
Svartbók kommúnismans
• „Saga birtir ekki ritdóma um þýðingar.“ Hvað um
ævisögu Maós?
• Kommúnisminn kostaði nær 100 milljónir mannslífa,
en nasisminn um 20 milljónir
• Er kúlakkabarn í Úkraínu minna virði en gyðingabarn
í Varsjá?
• Hugsanleg vörn: Ætlunin góð, en afleiðingarnar ekki
• Önnur hugsanleg vörn: Menn geta breytt stétt sinni,
en ekki kynþætti
• Fyrri vörnin ógild, en hin síðari gild, en í reynd ógild
• Nasisminn afneitaði sameðli manna í orði, en
kommúnisminn á borði
Bók mín
Fórnarlömb: Margolius
Fórnarlömb: Neumann
Fórnarlömb: Laogai
Missagt í fræðum þessum
Glópska
Óvandvirkni
Vanþekking
Glannaskapur
Hlutdrægni, jafnvel falsanir
„Það er mannlegt að gera mistök, en djöfullegt að
neita að leiðrétta þau“
• Mistök mín í Halldóri og leiðrétting þeirra
• Málsbætur: Ég í góðri trú
• Gagnrýnendum gekk eflaust gott eitt til
•
•
•
•
•
•
Glópska (Jón)
• „Fyrstur kom sænski kommúnistinn Hugo Sillén sem
steig á land í Reykjavík í desember 1920“ (JÓl 1999,
22).
• Jón glaptist á Sillén og Sillanum
• Bréfið var undirritað „Sillinn“ sem var gælunafn
Hendriks Siemsens Ottóssonar
• Brynjólfur Bjarnason hét „Billinn“ og Ársæll Sigurðsson
„Sælinn“.
• Sagan líka ótrúleg fyrir þá, sem þekkja til: Hvernig
ætti að hafa staðið á ferðum Silléns til Íslands í
desember 1920?
Glópska (Jón)
• „Nokkrir félagar í ungliðasamtökum
Sjálfstæðisflokksins, Heimdalli, stálu pappírunum úr
geymslu“ (JÓl 1999, 213)
• Alvarleg og órökstudd ásökun
• Gengur ekki upp: Hvar hefðu þeir átt að vita af
skjölunum hjá bróður Skúla Magnússonar?
• Sannleikurinn hafði verið upplýstur þegar í
minningargrein 1996. Halldór Briem
hafnarverkamaður komst í skjölin og kom þeim til
Morgunblaðsins
• Ég get staðfest, að þetta er rétt
Glópska (Þórbergur)
Óvandvirkni 1 (Jón)
Olaf (JÓl 1999, 23) í stað Olavs Vegheims
Langeseth (38) í stað Haavards Langseths
Koma Langseths 1929 (38) í stað 1930
N. G. Kabanov (231, 338) í stað Ívans Kabanovs
N. A. Gúsjev (336) í stað Fjodors Gúsjevs (180)
William Callagher (123, 125, 334) í stað Williams
Gallachers
• Óveður í aðsigi (330) í stað Ófriður í aðsigi
• MÍR Menningarsamband (340) í stað
Menningartengsl
• Technoimport (199) í stað Technopromimport
•
•
•
•
•
•
Óvandvirkni 2 (Jón)
Brottför Jafets haust 1931 (60) í stað vors
Brottför Andrésar frá Moskvu 1932 (65) í stað 1931
Flokksþing í Moskvu 1956 í mars (175) í stað febrúar
Lenínskólinn hætti starfsemi 1937 (340) í stað 1938
„Kaldastríðsár“ talin hefjast sumarið 1942
Ruglast á sendinefnd 1951 og 1953 (í myndatexta)
Kristján Júlíusson bar dulnefnið Poulson, ekki Jón
Jónsson eða Johnson (320); það bar Hjalti Árnason
• Lilja Halblaub bar ekki dulnefnið Karen Hansen (320),
það bar líklega Elísabet Eiríksdóttir
•
•
•
•
•
•
•
Ekki alltaf smáatriði
• Brynjólfur á Komintern-þingi 1924 „fyrir hönd
Jafnaðarmannafélags Reykjavíkur“ (26) í stað
íslensku deildarinnar í Alþjóðasambandi ungra k.
• Jafnaðarmannafélagið „rekið úr
Alþýðusambandinu eftir að kommúnistar komust í
meirihluta í félaginu“. Nei, rekið 1926
• „Þessi átök enduðu með því að Kristinn E. Andrésson
missti ítök sín í MÍR og var bolað úr félaginu“ (185),
en þetta var þveröfugt
• Tíður ruglingur í tilvísunum í rússneskar heimildir
• Ég mun afhenda gögn okkar Arnórs
Óvandvirkni (Árni)
Vanþekking (Jón)
• Tilgáta Jóns Ólafssonar: Angantýr Guðmundsson
félagi Johnson 1936
• Angantýr var rekinn úr kommúnistaflokknum 1934
• Hann var í Moskvu frá vori 1933 til hausts sama ár
• Johnson sat í miðstjórn kommúnistaflokksins
• Þá kemur aðeins einn maður til greina 1935: Hjalti
Árnason, sem var í Moskvu skv. öðrum heimildum
1935–1936
• Hjalti sat m. a. í miðstjórn flokksins 1932
• Bréf Einars Olgeirssonar haustið 1936 staðfestir þetta
Vanþekking (Svanur)
• „Þessi liðsganga hefur verið mjög óvenjuleg og
borið vitni um miklar hugsjónir, þar sem Íslendingar
hlutu enga hernaðarþjálfun og hermennska var
þeim ókunnug með öllu.“
• Hallgrímur Hallgrímsson hafði hlotið herþjálfun í
Moskvu
• Hann hafði fylgst með heræfingum Rauða hersins
og líklega tekið þátt í þeim
• Aðalsteinn Þorsteinsson var kunnur ofbeldisseggur
og hnefaleikakappi úr Reykjavík
• Allir fóru þeir á vegum kommúnistaflokksins til Spánar
Glannaskapur (Hendrik)
• Sagnfræðingar þurfa að vera varfærnir í sviðssetningum.
Ég nota þær minna en Guðjón Friðriksson
• Þeir mega ekki fullyrða um atvik, sem engar sönnur hafa
verið færðar á, t. d. að Nathan Friedmann hafi látist í
gasklefum nasista. Hann dó á sóttarsæng
• Pétur Gunnarsson (2007, 128): Nathan „hefur nær
örugglega liðið upp um skorsteininn í einhverjum
útrýmingarbúðum nasista.“ Heimildin var Hendrik
Ottósson, sem Pétur Pétursson (1986) hafði leiðrétt.
• „Svo gengur það til í heiminum, að sumir hjálpa erroribus
á gáng, og aðrir leitast síðan við að útryðja aftur þeim
sömu arroribus. Hafa svo hverir tveggja nokkuð að iðja.“
Glannaskapur (Jón)
• Hendrik bað um styrk frá Komintern 1920
• „Ekkert bendir til að þessi styrkur hafi verið veittur“
(JÓl 1999, 305)
• En styrkurinn virðist einmitt hafa verið veittur skv. nýrri
gögnum
• Glannalegt að álykta af þögn heimilda um
samþykki að beiðni hafi verið hafnað
• Margt benti einmitt til þess að vinstri andstaðan í
Alþýðuflokknum hefði fengið styrk
Ofsögum sagt
• Kjartan Ólafsson (2011) andmælir því, að Íslendingar
hafi gengið á skóla í Moskvu til að læra vopnaburð
• Að sjálfsögðu lærðu þeir ekki vopnaburð einan,
heldur margt annað, t. d. marxísk fræði. Enginn
hefur haldið öðru fram
• En sú staðreynd ein sér, að þeim var kenndur
vopnaburður, er mikilvæg
• Um það til nægar heimildir, m. a. frásagnir þriggja
Íslendinga, og erlendar heimildir (Rönning, Krekola)
• Svipað og byltingin: Best var, ef hún varð
friðsamlega, en ofbeldi beitt, ef þurfa þótti
Frekari ofsögum sagt
• Kjartan Ólafsson (2011) andmælir því, að íslenskir
kommúnistar hér hafi safnað skotvopnum og
skipulagt baráttulið
• Eflaust ekkert aðalatriði í starfsemi kommúnista
• En þeir söfnuðu skotvopnum skv. heimildum
• Og þeir skipulögðu eftir megni lið, sbr. samþykkt FUK
1924, starfsemi Jafets Ottóssonar 1931 og Varnarlið
verkalýðsins frá 1932
• Mielenz kom hingað sumarið 1932
• Brynjólfur skrifaði út til Moskvu um þessi mál
Varnarlið verkalýðsins
Hálfsannleikur oftast er
…
• Sölvi Helgason: „Þegar ég var í Köben …“
• Svavar Gestsson: stundaði nám í Berlín skv.
Alþingismannatali og Samtíðarmönnum
• Sagðist í „Þriðja manninum“ 1995 hafa verið í
Humboldt-háskólanum
• Var í æðsta flokksskóla miðstjórnar a-þýska
kommúnistaflokksins, IfG beim ZK der SED, með 700
mörk á mánuði og aðgang að leikskóla
miðstjórnarinnar fyrir barn sitt
• Þótti ekki hafa næga kunnáttu og var færður í
Parteihochschule Karl Marx
Þögnin sem heimild
• Björn Sigfússon 1940: „Þögnin er fróðleg, þó að henni
megi ekki treysta um hvert einstakt atriði“
• Dæmi: Miðstjórn KR veitti Dagsbrún 5 þús. punda
styrk sumarið 1952
• Hart verkfall Dagsbrúnar í desember 1952
• Kóreustríðið geisaði; Bandaríska varnarliðið nýkomið
• Styrkurinn fær nýja merkingu við þær aðstæður
• Ekki minnst á þetta í bók Jóns Ólafssonar 1999
• Ekki heldur minnst þar á jafnháan styrk 1961
• Ef til vill fleiri styrkir?
Gegn betri vitund? (Jón)
• 25. okt. 1945: „Ekki er ljóst af dagbókarfærslu
Dimitrovs hvað þeim Einari fór á milli en þó hefur
Einar rætt við hann um möguleika á viðskiptum
landanna því að Dimitrov hefur skrifað hjá sér að
Einar ætli sér næsta dag að hitta Anastas Mikojan,
utanríkisviðskiptaráðherra“ (JÓl 1999, 141)
• En ljóst er af dagbókarfærslu Dímítrovs, hvað þeir
Einar ræddu: „He asked for an advice of the Party’s
and Government’s behavior on the question of the
creation of U.S. bases in Iceland … and also on
some Party matters.”
Þjóðlegir verkalýðssinnar?
• Íslenskir kommúnistar samþykktu Moskvuskilyrðin
1920
• Þau kváðu á um undirgefni við Komintern og
vopnað bardagalið í þágu byltingarinnar
• Kommúnistaflokkurinn fór eftir þessu, beitti ofbeldi í
Gúttóslögum, Novu-deilu og Borðeyrardeilu
• Sameining Alþýðuflokks og kommúnistaflokks
mistókst vegna afstöðunnar til Ráðstjórnarríkjanna
og til skipulagsreglna, agi átti að vera harður og
vopnuð bylting skyldi ekki útilokuð
• Jón Ólafsson hefur eitt minnisblað undirmanns
Söfnuður Stalíns?
• Þór Whitehead hefur heillaóskir AUK til
Æskulýðsfylkingarinnar frá Michal Wolf
• Hann hefur Moskvuför Kristins E. Andrésson 1940, þar
sem Sósíalistaflokkurinn er talinn kommúnistaflokkur
• Hann hefur hegðun sósíalistaforingjanna eftir
fangelsisvist 1941, þegar þeir taka við fyrirmælum
• Hann hefur fjárframlög úr sjóðum Kremlverja og
stuðning íslenskra sósíalistablaða við málstað
Kremlverja
• Hann hefur austurferðir virðingarfólks úr SF og
úthlutun námsstyrkja
Skoðanir eða falsanir?
• Það er sögufölsun, ef horft er fram hjá byltingareðli
kommúnistaflokksins
• Það er líka sögufölsun, ef horft er fram hjá
ráðstjórnardýrkun og ráðstjórnarhlýðni
Sósíalistaflokksins og Alþýðubandalagsins
• Sósíalistaflokkurinn var í beinum tengslum við
„bræðraflokka“ Ráðstjórnarríkjanna og AusturEvrópu
• Alþýðubandalagið var í tengslum við
kommúnistaflokka Rúmeníu og Kúbu
• Margt gott og einlægt fólk, en hið sama má eflaust
segja um nasista
Niðurstöður
• Ef sagnfræðingar fordæma nasisma, þá verða þeir
líka að fordæma kommúnisma
• Ef þeir fordæma málsvara nasismans, þá verða þeir
líka að fordæma málsvara kommúnismans
• Aðalatriðið er þó að hlusta á raddir hinna málllausu,
beina kastljósinu að hinum ósýnilegu, — af hinum
þarf ekki að hafa áhyggjur
• Íslenskir kommúnistar voru hvorki meiri né minni
kommúnistar en annars staðar, hvorki betri né verri
• Mannkynssagan er glíma ofbeldis og skynsemi, saga
fórnarlamba ekki síður en böðla