„Glapráð hvíta mannsins“: Frumbyggjar Norður

Download Report

Transcript „Glapráð hvíta mannsins“: Frumbyggjar Norður

Frumbyggjar Norður- Ameríku
 Lengi vel hafa frumbyggjar þótt vera áhugavert efni
fyrir fræðimenn til að fjalla um, sérstaklega innan
mannfræði, fornleifafræði og safnafræði.
 Ástæðan fyrir því hversu merkilegir gripir frumbyggja
þóttu var vegna þess hversu framandi og öðruvísi
þeir voru. Þeir voru taldir vera brúin á milli
siðmenntaðra samfélaga og náttúrunnar.
 Frumbyggjarnir hafa lengi verið taldir hverfandi
kynstofn sem hefur þurft að bjarga.
 Frumbyggjar hafa lagt mikið upp úr því að bæta
ímynd sína og segja sína eigin sögu
 Söfn, sérstaklega etnógrafísk söfn, hafa verið
gagnrýnd fyrir að gefa villandi og staðnaða mynd af
frumbyggjum og sögu þeirra
 Frumbyggjar vilja ekki láta skilgreina sig út frá
hugmyndum um þeirra upprunalega samfélag. Þeir
vilja ekki að söfn haldi áfram að sýna þeirra sögu út
frá fortíðinni heldur sýni fram á að þeir eru hluti af
samtímanum og mikilvægur hluti af framtíðinni
Viðhorf frumbyggja NorðurAmeríku til minjasafna
 Aðgerðasinnar frumbyggja Norður -Ameríku hafa
verið ósáttir við hvernig söfn hafa sett fram þeirra
menningu og hafa lagt áherslu á tvenn málefni.
 Í fyrsta lagi er það hvernig almenn söfn hafa
jarðneskar leifar þeirra til sýnis, heilaga muni og muni
sem tilheyra þeirra útfararsiðum.
 Í öðru lagi er það hversu illa hefur verið staðið að
þátttöku frumbyggja Norður-Ameríku í að sýna fram
á raunverulega menningu þeirra og hversdagslegt líf
 Að mati Vine Delori’s virðast allir áhugaverðir hlutir og frásagnir
sem koma frá frumbyggjum Ameríku innan safna vera gamlir og
lúnir og engum nýjum hlutum stillt fram.
 Það er látið líta út fyrir að frumbyggjar hafi hætt framleiðslu hluta
eða verkfæra og engar nýjungar átt sér stað síðan á
nýlendutímum.
 Á sýningum virðast þeir ekkert hafa breyst eða þróast. Oft virðast
þau samfélög sem til rannsóknar hafa verið ekki þótt nóg
framandleg og þau því gerð forneskjulegri en þau voru í raun.
 Margir frumbyggjar telja að söfn séu staðir þar sem passað er upp
á gripi en að söfnin eigi ekki í rauninni gripina.
Ólíkar aðferðir og
hugsunarháttur
 Mörg frumbyggjasamfélög óska eftir að fá aðgang
að eða endurheimta gripi sem tilheyra þeirra
menningararfleifð.
 the Native American Graves Protection og the
Repatriation Act in the US (NAGPRA)
 Menningarleg forvarsla frekar en vísindaleg
 Margir safnastarfsmenn sjá ekki fram á hvernig
frumbyggjasamfélög geta varðveitt gripina á sama
hátt og siðareglur vestrænna safna segja til um.
Frumbyggjar eru spurðir um hvað þeir ætli að gera
við hlutina og á hvaða hátt þeir ætli að varðveita þá.
 Þessi ólíku sjónarmið um siðferði og varðveislu gripa
geta gert samskipti milli frumbyggjasamfélaga og
safna einstaklega erfið.
Samstarf við frumbyggja og
safna
National Museum of American Indians
Canadian Museum of Civilizations.
Viðhorf Íslendinga til frumbyggja
Norður-Ameríku
 Á kvæðum Vestur-Íslendinga má sjá mismunandi
hugsunarhátt gagnvart frumbyggjum NorðurAmeríku, hvort sem það var skilningur og samúð
með þeim eða fordómar gagnvart þeim.
 Mikið hefur verið skrifað um sögu Vestur-Íslendinga
og hægt er að finna margar heimildir um líferni þeirra
í byrjun landnáms og uppbyggingu á Nýja-Íslandi.
 Íslendingar höfðu verið töluvert forvitnir um
frumbyggja Norður-Ameríku
"Kanada: land og þjóð".
Landið beið um ótal aldaraðir
eftir mannsins virku hönd –
þar til Íslands sveinar sigurglaðir
sigldu að Vínlands fögru strönd.
Á Íslendingadeginum árið 1945 flutti Gísli Jónson kvæði sitt Kanada: land og þjóð.
Það er víðtækt sjónarmið í kvæðum Íslendinga um Ameríku að álfan hafi verið
sögulaus og mannlaus áður en hvíti maðurinn kom og "Íslands sveinar"
voru fyrstir og byggðu landið "að hvítra manna sið".
Guttormur J. Guttormsson
 Í skrifum Guttorms J. Guttormsson er hægt að sjá áhuga
hans á lífi frumbyggjana.
 ,,Fyrir sína aldagömlu þekkingu á landinu og
möguleikum þess, lifðu þeir miklu betra og léttara lífi en
íslenzku landnemarnir. Þeir tóku ekkert upp eftir
íslendingum, en Islend- ingar lærðu margt af þeim og
hefðu átt að læra fleira.”
 ,,Þetta voru svonefndir Cree-Indíánar, mesta myndarfólk, stórvaxið, hraustlegt, þrekmikið og fjörugt “….”Þeir
voru sérlega vandaðir, stálu aldrei neinu, þó þeir sjálfir
væru rændir og margsnuðaðir af kaupmönnum”.
(Guttormur J. Guttormsson, 1964).
Glapráð hvíta mannsins
Hinn rauði flokkur réttlaus var
svo reiknaðist hvítum mönnum.
Hann enda fátt úr býtum bar
til bóta nýjum önnum.
Og veiðilanda skortur skar,
svo skjótt hann féll í hrönnum.
Friðarpípan fannst ei þar,
var feigð af nýjum grönnum.
Árið 1937 birtist kvæði eftir Jóhannes Húnfjörð og kemur fram gagnrýni á
framferði vestrænna manna gagnvart frumbyggjum. Þar er talað um
aðstæður "hins smáða kyns" og hvernig frumbyggjar hafa verið rændir landi
sínu og hraktir burt. "Þinn auður var ei aurafjöld / en aldagömul menning.”
Stephan G. Stephansson
Indíánum
Öll járnbrautarskemman er skríðandi haf
af skrælingjadyrgjum og hyski.
Og mannaþef leggur þeim ilmandi af
sem úldnum og hálfreyktum fiski,
þeim ræflunum, rauðum og bláum
og röndóttum, bröndóttum, gráum.
Með þverúðar ísglott um inndreginn munn,
með íbygginn svip, er ei hýrnar,
með hörundslit sama og hangikrof þunn,
með hrafnsvarta kollinn og brýrnar,
með hártog í fléttum og flókum,
í flakandi voðum og brókum (Stephan G.
Stephanson, 1889).
Gripir af Þjóðminjasafni frá
Frumbyggjum NorðurAmeríku
Indíánabátur frá A.P. Hanson
Indíánahanskar frá Kanada
Úrvasi frá Sólveigu Eymundsdóttir
Hanskar sem Sigurður Kristjánsson, bóksali í Reykavík gaf árið 1911. Hanskarnir koma
frá indíánabyggð norðan við Hudsonflóa. Sigurður Ottense sem var íslenskur bóksali
Í Winnipeg Kanada sendi Sigurði Kristjánssyni hanskana.
Indíánaskór úr sérsafni Tryggva Gunnarssyni
Indíánaskór frá A.P. Hanson 1885
Indíánaskór frá A.P. Hanson 1885
Skinnskór sem Sólveig Eymundsdóttir gaf árið 1912
 Munirnir hér að ofan eru flestir úr Þjóðfræðisafni
Þjóðminjasafnins.
 Þeir voru líklegast gefnir safninu af VesturÍslendingum eða fjölskyldum
 þeirra sem höfðu verslað við frumbyggja NorðurAmeríku.
 Í lýsingu á gripunum kom ávallt fram að þeir væru
gerðir af frumbyggjum Norður-Ameríku á síðari hluta
19.aldar.