Síðasta aftakan

Download Report

Transcript Síðasta aftakan

Síðasta aftakan
á Austurlandi
Texti
Þórhallur Þorvaldsson
Uppsetning og hönnun
Guðmann Þorvaldsson
2006
Síðasta aftakan á Austurlandi
Eiríkur Þorláksson f. 1763 - d. 1786
Fæddur að Þorgrímsstöðum í Breiðdal .
Vistaðist um tíma hjá séra Gísla Sigurðssyni
í Eydölum.
Umsögn Gísla um Eirík var þannig…
Latur, kærulaus um kristin fræði, hneigður
til stráksskapar, þjófnaðar og brotthlaup úr
vistum.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Þeir sem fylgdu Eiríki í
þjófnaði voru…
Gunnsteinn Árnason frá
Geldingi í Breiðdal og Jón
Sveinsson úr Breiðdal.
Jón vildi slíta samvistum við hina en Eiríkur tók
því víðsfjærri og neyddi hann til vistar með þeim
félögum. Hann var þá orðinn sjúkur og vildi leita
hjálpar í byggð en Eiríkur aftók það með öllu.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Þeir félagar höfðustu við á Naphornsklettum rétt við Streiti við Djúpavog. Þá
var Jón orðinn mjög veikur.
Síðar, 27. maí 1784,
leiddist Eiríki veikindatalið í
Jóni, svo hann tunguskar
manninn og stakk hann svo
með hnífi í brjóstið. Það
varð hans bani. Líkið fannst
6 dögum síðar.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Nú fluttu misyndismennirnir sig austur á
bóginn. Fljótlega voru þeir Eiríkur og
Gunnsteinn teknir fyrir sauðaþjófnað á
Melrakkanesi í Álftafirði og dæmdir af Jóni
Sveinssyni sýslumanni á Eskifirði.
Þótti fullvíst að þeir
félagar væru viðriðnir
dauða Jóns. Voru þeir nú
ásakaðir og handteknir
fyrir morðið á honum.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Jón Sveinsson, sýslumaður
Sunnmýlinga, fékk mál þeirra
til meðferðar og voru
sakamennirnir fluttir til
Eskifjarðar og geymdir í
dýflissu.
Með þeim Eiríki og Gunnsteini var 18 ára
piltur úr Mjóafirði, Sigurður Jónsson. Hann
var ólæs og skrifandi, dæmdur fyrir þjófnað
og hafði náðst út í Helgustaðahreppi.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Þeir struku úr fangageymslunni og stálu sér
mat frá sýslumanni. Litlu síðar voru þeir svo
gripnir af bóndanum á Sigmundarhúsum.
Síðar voru þeir fluttir í
kofabyrgi við bæinn Borgir
sunnan Eskifjarðarár.
Þann vetur afát Eiríkur
félaga sína í fangavistinni.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Eiríkur beið við gluggann og tók við
matnum sem þeim öllum var ætlaður, hirti
bestu bitana en hnúturnar fengu hinir.
Sagt var að
sýslumannsfrúin hefði verið
fastheldin á matinn og
sagði Eiríkur síðar að svo
naumt hafði frúin skammtað
að maturinn hefði rétt
dugað handa sér einum.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Sýslumaður var í Danmörku í fremur
vondum málum, vegna þess sem gerðist.
18. júlí, árið 1786, var settur upp
héraðsréttur til að fara með mál
Eiríks. Síðan fór málið fyrir
Kanselíið í Kaupmannahöfn og
afgreitt í leyniráði 11. janúar 1786.
20. janúar 1786 staðfesti konungur í
Kristjánsborg dóminn.
Síðasta aftakan á Austurlandi
30. september 1786 var
Eiríkur, úr Eydalasókn,
hálshöggvinn á Mjóeyri
við Eskifjörð.
Erfiðlega gekk að fá mann til að
gegna hlutverki böðuls. Seint og
um síðir gaf sig fram til starfsins
Björn frá Tandrastöðum í Norðfirði og
launin sem hann fékk fyrir verkið voru
4 ríkisdalir og 48 skildingar.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Annar maður, Oddur frá Krossanesi við
Reyðarfjörð, var umsjónarmaður starfsins.
Um hann var þetta kveðið
Með öxinni hjó hann ótt og títt
sem óður skollinn.
Herra Oddur hélt í kollinn,
hinir litu blóðs í pollinn.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Sagt var að Björn, böðullinn, hafi verið
búinn að drekka mikið áður en hann hóf
embættisverk sitt og gekk aftakan því illa.
Segir sagan að svo
óhönduglega hafi
böðli til tekist að eftir
fjórða eða fimmta
högg var Eiríkur enn
með lífsmarki.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Dönskum skipstjóra,
Jörgen Pedersen Borg,
af húkkortunni Keflavík, ofbauð
aðfarirnar, hundskammaði
böðulinn og var það til þess að
Björn lauk verkinu í 7 höggum.
Til siðs var að prestar eða biskupar væru
vitni að aftökum. Séra Jón Högnason á
Hólmum í Reyðarfirði var viðstaddur
atburð þennan.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Líkamsleifar Eiríks voru
grafnar í túninu á Mjóeyri
neðanlega á eyrinni.
Grafið var niður á leiðið á Mjóeyri
1905 eða 1906 og fannst þá
karlmannsbeinagrind og
höfuðið við hlið hennar.
Sagt er að aftökuöxin sé geymd
á Sjóminjasafni Austurlands á Eskifirði.
Von okkar er sú að þessi
stutta sýning megi vera til
þess að auðga þekkingu
manna á þeim atburði sem
fjallað var um.
Lifið heil!
Guðmann og Þórhallur Þorvaldssynir