Eiríks saga rauða, 1.kafli

Download Report

Transcript Eiríks saga rauða, 1.kafli

Eiríks saga rauða, 1. kafli
• Sagt er frá landnámi Auðar (Unnar) djúpúðgu,
í Dölunum.
• Auður gaf Vífli, leysingja sínum, Vífilsdal til
ábúðar. Synir Vífils hétu Þorbjörn og Þorgeir.
Eiríks saga rauða, 2. kafli
• Eiríkur rauði Þorvaldsson flutti frá Noregi til
Íslands ásamt föður sínum. Þeir námu land á
Hornströndum.
• Eiríkur kvæntist Þjóðhildi. Síðan fluttu þau að
Eiríksstöðum í Haukadal.
• Eiríkur lenti fljótlega í útistöðum við nágranna
sína og var dæmdur burt út Haukadal.
Eiríks saga rauða, 2. kafli, frh.
• Eiríkur nam þá nokkrar eyjar í Breiðafirði og
settist að í Öxney.
• Hann lánaði Þorgesti setstokka og sótti þá
sjálfur þegar Þorgestur skilaði þeim ekki.
• Þorgestur móðgaðist, elti Eirík og Eiríkur drap
tvo syni hans.
• Fyrir þessi víg var Eiríkur rauði dæmdur sekur.
Eiríks saga rauða, 2. kafli, frh.
• Eiríkur bjó skip sitt og leyndist í Dímonarvogi
meðan hans var leitað í Breiðafjarðareyjum.
Hann hugðist finna Gunnbjarnarsker, sem
hann hafði heyrt af.
• Eiríkur rauði sigldi svo til Grænlands, kannaði
landið og tók sér bústað í Brattahlíð.
• Hann nefndi landið Grænland til að lokka
menn þangað.
Eiríks saga rauða, 3. kafli
• Þorbjörn Vífilsson kvæntist og settist að á
Laugarbrekku á Snæfellsnesi.
• Dóttir hans hét Guðríður. Hún dvaldist löngum
í fóstri hjá Ormi bónda á Arnarstapa.
• Einar Þorgeirsson, sonur Þorgeirs leysingja,
bað Guðríðar. Þorbjörn faðir hennar tók ekki í
mál að gifta hana þrælssyni.
Eiríks saga rauða, 3. kafli, frh.
• Þorbjörn er blankur en fremur en draga saman
seglin vill hann flytja af landi á brott.
• Hann ákveður að fara á fund Eiríks rauða,
vinar síns. Með honum fara um 30 manns,
þ.á.m. Ormur og kona hans.
• Fólkið lendir í miklum hrakningum, margir
látast úr sótt (m.a. Ormur og kona hans) en
loks nær það landi á Herjólfsnesi á Grænlandi.
Eiríks saga rauða, 4. kafli
• Á þessum tíma ríkti mikið hallæri á Grænlandi.
• Þorbjörg lítilvölva er fengin til að spá fyrir um
framtíðina.
• Hana aðstoðar Guðríður Þorbjarnardóttir.
• Um vorið flytur Þorbjörn með fjölskyldu sína
til Eiríks rauða í Brattahlíð.
Eiríks saga rauða, 5. kafli
• Eiríkur og Þjóðhildur áttu tvo syni: Þorstein,
sem dvaldi heima í Brattahlíð, og Leif, sem var
í Noregi, með Ólafi konungi Tryggvasyni.
• Á leið úr fríi á Grænlandi dvelst Leifur um
sumar í Suðureyjum. Þar kynnist hann náið
konu sem heitir Þórgunna.
Eiríks saga rauða, 5. kafli, frh.
• Leifur vill ekki hafa Þórgunnu með sér frá
Suðureyjum en hún segist vera ólétt og spáir
því að sonurinn verði til lítils gagns; segist
munu senda hann til Grænlands í fyllingu
tímans.
• Leifur fer til Noregs og dvelur þar einn vetur.
• Næsta vor sendir Ólafur Tryggvason hann í
kristniboð til Grænlands.
Eiríks saga rauða, 5. kafli, frh.
• Leifur villist af leið og finnur land nokkurt þar
sem vex hveiti (=villirís), vínviður og mösur (=
hlynur).
• Leifur bjargar mönnum af skipsflaki.
• Leifur kemst til Grænlands og kristnar
landsmenn.
• Eftir þetta er hann kallaður Leifur hinn heppni.
Eiríks saga rauða, 5. kafli, frh.
• Þjóðhildur tekur kristni og lætur reisa kirkju.
Hún neitar að sænga hjá Eiríki því hann vill
ekki taka kristna trú.
• Þorsteinn Eiríksson hyggst sigla til landsins
sem Leifur fann, ásamt föður sínum. Eiríkur
slasast á fæti þegar hann felur silfur sitt en fer
samt.
• Þá rekur víða um höf og taka loks land aftur á
Grænlandi.
Eiríks saga rauða, 6. kafli
• Þorsteinn Eiríksson kvænist Guðríði
Þorbjarnardóttur.
• Þau fara í Lýsufjörð í Vestri-byggð og búa þar
félagsbúi móti hjónunum Þorsteini og Sigríði.
• Mikil sótt kemur upp á bænum og margir
deyja; ganga flestir herfilega aftur.
Eiríks saga rauða, 6. kafli, frh.
• Meðal þeirra sem deyja úr sótt eru Þorsteinn
Eiríksson og Sigríður, kona hins Þorsteins.
• Þorsteinn Eiríksson vaknar upp eftir andlátið,
biður um að fá leg í vígðri mold og spáir fyrir
Guðríði. Leggst svo aftur niður dauður.
• Þorsteinn er jarðaður í Brattahlíð.
• Eiríkur rauði tekur við Guðríði enda lést faðir
hennar um svipað leyti.
Eiríks saga rauða, 7. kafli
• Þorfinnur karlsefni kemur til Grænlands, úr
Skagafirði. Hann dvelur með Eiríki rauða í
Brattahlíð.
• Eiríkur leggst í þunglyndi því hann á ekkert öl
fyrir jólin. Þorfinnur karlsefni leysir úr þeim
vanda.
• Þorfinnur biður Guðríðar og þau giftast.
Eiríks saga rauða, 8. kafli
• Þorfinnur karlsefni býr skip sitt til Vínlands.
Með honum fara um 160 manns, þ.á.m.:
•
•
•
•
Guðríður, kona hans
Snorri, vinur hans
Freydís Eiríksdóttir og Þorvarður maður hennar
Þórhallur veiðimaður
• Þau finna Helluland, Markland og
Furðustrandir.
Eiríks saga rauða, 8. kafli, frh.
• Haki og Hekja, skoskir þrælar, fara í
könnunarleiðangur og finna vínvið og hveiti.
• Þórhallur veiðimaður galdrar hval á land.
Hvalkjötið fer illa í menn.
Eiríks saga rauða, 9. kafli
• Þórhallur veiðimaður vill í norður en Karlsefni í
suður. Þeir skilja og fara 8 manns með Þórhalli
en allir hinir fylgja Þorfinni karlsefni.
• Þórhall og félaga rekur til Írlands og þar lét
Þórhallur líf sitt.
Eiríks saga rauða, 10. kafli
• Karlsefni og hitt fólkið sigla suður og taka sér
bústað við stórt vatn sem þau nefna Hóp. Þar
eru landkostir feikilega góðir.
• Einn morguninn kemur fjöldi húðkeipa
siglandi. Innfæddir eru forvitnir en gera
norrænu mönnunum ekkert mein og sigla svo
brott.
Eiríks saga rauða, 11. kafli
• Um vorið kemur fjöldi skrælingja (innfæddra)
siglandi á húðkeipum.
• Karlsefni og félagar hafa vöruskipti við þá,
skipta á rauðu klæði og skinnum, en Karlsefni
bannar mönnum að láta skrælingja hafa vopn.
• Naut Þorfinns karlsefnis fælir skrælingja á
brott.
Eiríks saga rauða, 11. kafli, frh.
• 3 vikum seinna koma skrælingjar aftur.
• Nú slær í harðan bardaga og er útlit fyrir að
norrænir menn lúti í lægra haldi enda beita
skrælingjar göldrum.
• Freydís hræðir skrælingjana á brott með því að
leggja sverð á nakin brjóst sín.
• Karlsefni og félögum líst orðið illa á að setjast
að við Hóp en halda áfram að kanna landið.
Eiríks saga rauða, 12. kafli
• Karlsefni og félagar rekast á einfæting sem
skýtur Þorvald Eiríksson til bana.
• Á veturna dvelja norrænu mennirnir í
Straumfirði. Fyrsta haustið fæddist Þorfinni
karlsefni og Guðríði sonur, sem nefndur var
Snorri.
• Snorri er 3 ára þegar þau ákveða að sigla aftur
til Grænlands.
Eiríks saga rauða, 12. kafli, frh.
• Á leiðinni taka þau land á Marklandi. Þar taka
hinir norrænu tvö innfædd börn til fanga.
Innfæddu börnin segja þeim sögur af kóngi
sínum og landi þegar þau hafa lært íslensku.
• Þau komast heilu og höldnu aftur til
Grænlands og fara til Eiríks rauða í Brattahlíð.
Eiríks saga rauða, 13. kafli
• Bjarni Grímólfsson hafði orðið viðskila við
Karlsefni og rak skip hans í Írlandshaf. Þar lenti
það í maðksjó.
• Ljóst er að ekki komast allir fyrir í björgunarbát
og er dregið um hverjir komast. Bjarni lætur
eftir sitt pláss í björgunarbátnum.
• Þeir sem komust í bátinn björguðust en hinir
fórust í maðksjónum.
Eiríks saga rauða, 14. kafli
• Eftir tveggja vetra dvöl í Grænlandi halda þau
Þorfinnur karlefni og Guðríður til Íslands.
• Þau setjast að í Reyninesi í Skagafirði.
• Af Snorra Þorfinnssyni / Karlsefnissyni er
komið margt mætra manna, þ.á.m. þrír
biskupar.