Setningahlutaglærur

Download Report

Transcript Setningahlutaglærur

Frumlag
 Fallorð í nefnifalli: Ég les
 Stýrir persónu sagnar: Við lesum/þið lesið
 Táknar geranda, þann sem aðhefst, er eða
verður það sem sögnin segir: Ég les
Mars 2003
EPE ísl 202
Umsögn
 Sögn er kjarni hverrar setningar, engin setning
er án sagnar.
 Allar sagnir sem mynda merkingarlega heild
nefnast sagnliður og sagnliður nefnist líka
umsögn: Ég ætla að fara að reyna að lesa
bókina
 Ein umsögn er í hverri setningu en umsögnin
getur verið samsett úr mörgum sögnum og þá
eru margar hjálparsagnir á undan aðalsögn en
hún er síðust í samsettri umsögn.
Mars 2003
EPE ísl 202
Andlag
 Andlag (andl.) er setningarhluti sem stendur
með áhrifssögn og fer á eftir henni í beinni
orðaröð. Andlag er yfirleitt fallorð í aukafalli:
Ég les bókina
 Sumar sagnir taka með sér tvö andlög, stýra
tveimur föllum. Oft er þá fyrra andlagið
kallað óbeint andlag: Ég gaf öndunum brauð
Mars 2003
EPE ísl 202
Sagnfylling
 Áhrifslausar sagnir eins og vera, verða, heita
og þykja taka með sér sagnfyllingu (sf.).
 Sagnfylling er ævinlega fallorð, nafnorð eða
lýsingarorð í nefnifalli.

Mars 2003
vera læknir
heita Jón
þykja minnugur
EPE ísl 202
Forsetningarliður
 Forsetning ásamt þeim orðum sem hún stýrir falli á
nefnist forsetningarliður (fsl.). Nafnorð fylgir nær
ævinlega forsetningu og fall þess stýrist af henni:
um hest / frá hesti / til hests
 Ýmis ákvæðisorð, einkunnir, geta einkennt
nafnorðið en saman mynda nafnorð og ákvæðisorð
þess forsetningarlið: um gamla góða hestinn minn
Mars 2003
EPE ísl 202
Atviksliður
 Atviksliður (al.) er setningarliður sem er oft
eitt atviksorð. Atviksorðinu getur fylgt annað
atviksorð til nánari fyllingar. syngur afar vel
 Atviksorð einkenna mest sagnir: syngur vel,
kemur oft, fer út, er úti.
 Áhersluatviksorð herða eða draga úr
merkingu lýsingarorða: afar fallegur,
geysilega virðulegur.
Mars 2003
EPE ísl 202
Einkunn
 Einkunn (eink.) er fallorð sem stendur sem
ákvæðisliður eða ákvæðisorð en ákvæðisorð
nefnast þau orð sem standa með öðrum
orðum og segja nánar til um einkenni þess
orðs.
 Einkunnir raðast kringum nafnorð í þessari
röð: ófn., áfn., to., lo.+, no., efn.
 allra þessara fjögurra góðu stráka minna
Mars 2003
EPE ísl 202
Eignarfallseinkunn
 Nafnorð í eignarfalli sem stendur með öðru
nafnorði er nefnt eignarfallseinkunn: dóttir
skólastjórans, sonur prestsins, eigandi bílsins
 Eignarfallseinkunn stendur á eftir nafnorðinu
sem hún einkennir eins og eignarfornafn.
Mars 2003
EPE ísl 202