Varmaorka Upprifjun 2-1

Download Report

Transcript Varmaorka Upprifjun 2-1

Varmaorka
Upprifjun 2-1
1.Í hverju fólst framlag Rumfords greifa og
James Prescotts Jouls sem varð til þess að
auka skilning manna á eðli varma?
Rumford greifi sagði: Varmi er ekki efni
(ylefni), hann byggist á hreyfingu.
James Prescott Joule sagði: Varmi er
orkumynd sem byggist á hreyfingu.
1
Varmaorka
Upprifjun 2-1
2. Hvað eru sameindir?
Sameindir eru örsmáar eindir efnis, gerðar
úr frumeindum.
2
Varmaorka
Upprifjun 2-1
3.Á hvaða þrjá vegu flyst varmi? Lýstu því
hvernig varminn flyst í hveju tilviki fyrir
sig.
Varmaleiðing: Varmi flyst með beinni
snertingu sameindanna.
Varmaburður: Varminn flyst með straumi
straumefnis.
Varmageislun: Varminn berst sem ósýnileg
geislun
3
Varmaorka
Upprifjun 2-2
1. Berðu saman hreyfiorku og stöðuorku.
Hreyfiorka byggist á hreyfingu hlutar, en
stöðuorka er orka sem hlutur býr yfir vegna
stöðu sinnar.
4
Varmaorka
Upprifjun 2-2
2.Hvað er hiti? Hvernig er hann mældur?
Hiti er mælikvarði á meðalhreyfiorku
sameinda.
Hiti er mældur í einingunni gráður (eða
kelvin).
5
Varmaorka
Upprifjun 2-2
3. Hvað er varmi? Í hvaða einingum er hann
mældur?
Varmi er ein mynd orkunnar.
Varmaorka er mæld í júlum eða kaloríum
(hitaeiningum).
6
Varmaorka
Upprifjun 2-3
1.Hvaða tilgangi gegnir einangrun?
Einangrun dregur úr varmatapi vegna
varmaleiðingar.
2.Á hvaða hátt stuðlar tvöfalt gler í gluggum
að einangrun húsa?
Loft lokast milli glerjanna og það leiðir
varma treglega.
7
Varmaorka
Upprifjun 2-3
3.Útskýrðu hvernig kæliskápur verkar.
Kælivökvi breytist í gas og tekur til sín
varma.
Heitu kæligasinu er síðan dælt inn í þéttinn
þar sem varmi er tekinn úr því og við það
breytist það aftur í vökva.
Þéttirinn miðlar varmanum til umhverfisins.
8