Frítökuréttur

Download Report

Transcript Frítökuréttur

Slide 1

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frítökuréttur

Helga Birna Ingimundardóttir
hagfræðingur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 2

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samningur um ákveðna þætti er varða skipulag
vinnutíma og hvíldartímaákvæði kjarasamninga
Grundvöllur, gildissvið, helstu efnisatriði og
framkvæmd

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 3

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Grundvöllur / Markmið
 Vinnutímasamningurinn er gerður til að uppfylla skuldbindingu
vegna EES – samningsins. Hann byggir á vinnutímatilskipun
ESB.
 Samningurinn gildir fyrir allan vinnumarkaðinn
 Markmið samningsins er að setja lágmarkskröfur til að stuðla
að umbótum, einkum að því er varðar vinnuumhverfi til að
tryggja aukið öryggi og heilsuvernd starfsmanna.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 4

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Skilgreiningar
 Vinnutími: sá tími sem starfsmaður er við störf, er til taks
fyrir vinnuveitandann og innir af hendi störf sín eða skyldur,
telst vinnutími. Hér er átt við virkan vinnutíma og reiknast
neysluhlé þar sem ekki er krafist vinnuframlags og sérstakir
frídagar þ.a.l. ekki til vinnutíma.
 Hvíldartími: Tími sem ekki telst til vinnutíma.
 Næturvinnutími: Tímabilið frá kl. 23:00 til kl. 6:00
 Vaktavinna: Vinna sem skipt er niður í mismunandi
vinnutímabil/vaktir skv. ákveðnu kerfi, þar sem starfsmaður
vinnur á mismunandi vöktum á tilteknu tímabili sem mælt er í
dögum eða vikum.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 5

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Meginefni samningsins
 Daglegur hvíldartími: Vinnutíma skal haga þannig að á 24
stunda tímabili, reiknað frá skipulögðu,venjubundnu upphafi
vinnudags starfsmanns, fái starfsmaður a.m.k. 11 klst.
samfellda hvíld. Verði því við komið, skal dagleg hvíld ná til
tímabilsins frá kl. 23:00 til 06:00. Óheimilt er að
skipuleggja vinnu þannig að vinnutíma á 24 klst. tímabili fari
umfram 13. klst.
 Vikulegur hvíldartími: Starfsmaður á rétt á a.m.k. Einum
frídegi á hverju sjö daga tímabili sem tengist beint daglegum
hvíldartíma. Vikulegur frídagur skal vera á sunnudegi.
 Árlegt orlof: ákvarðast af lögum um orlof og kjarasamningum.
 Hlé: Starfsmaður á rétt á a.m.k. 15 mín. Hléi ef vinnudagur
er lengri en sex klukkustundir.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 6

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Meginefni samningsins
Hámark vikulegs vinnutíma
 Vinnutími á viku skal ekki vera umfram 48 klst. að meðaltali
að yfirvinnu meðtalinni. Reikna skal út frá virkum vinnutíma
að viðbættu lágmarksorlofi (24 dagar), veikindum,
fæðingarorlofi og launuðu starfsnámi.
 Viðmiðunarímabil vegna meðalvinnutíma skal vera sex mánuði,
janúar – júní og júlí – desember.
 Æskilegt að vinnutími sé sem jafnastur frá einni viku til
annarrar.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 7

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Skipulagt eða venjubundið upphaf vinnudags –
skýring:
 Sé skipulagt upphaf vinnudags t.d. Kl 8:00, skal miða við það
tímamark. Hafi starfsmaður á hinn bóginn fastan vinnutíma
sem hefst t.d. Kl. 20:00, skal sólarhringurinn miðaður við það
tímamark. Í vaktavinnu er eðlilegt að miða upphaf vinnudags
við merktan vinnudag á vaktskrá/varðskrá. Sé ekki um
merktan vinnudag að ræða, t.d. Aukavakt í vaktafríi, miðast
upphafið við tímamörk síðasta merkta vinnudags.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 8

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frávik frá 11 klst. lágmarkshvíld
 Vaktaskipti:

 Sérstakar aðstæður:

 Truflun á starfsemi vegna ytri astæðna:

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 9

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frávik frá 11 klst. lágmarkshvíld
 Vaktaskipti: Á skipulegum vaktaskiptum er heimilt að stytta
samfellda lágmarkshvíld starfsmanna í allt að 8 klst. þetta á
t.d. við þegar starfsmaður skiptir af morgunvakt yfir á
næturvakt samkvæmt skipulagi vaktskrár.

Fráviksheimild þessi frá 11 klst. lágmarkshvíld á hins vegar
ekki við þegar starfsmaður lýkur yfirvinnu og fer yfir á
reglubundna vakt og öfugt.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 10

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Dæmi um frávik frá 11 klst. lágmarkshvíld
 Morgunvakt samkvæmt skipulegri vaktskrá er frá 08:00 til
16:00 og næturvakt samkvæmt skipulegri vaktskrá er frá
00:00 til 08:00. Hér gildir fráviksheimildin frá 11 klst.,
þ.e.a.s. 8 klst. milli skipulegra vaktaskipta. Starfsmaður þarf
hins vegar að vera á morgunvaktinni frá 08:00 til 17:00 og
lýkur þar með morgunvaktinni í yfirvinnu og því gildir reglan
um 11 kl.st hvíld en ekki 8 klst. Ef hann mætir hins vegar á
næturvaktina kl. 00:00, samkvæmt beiðni yfirmanns, hefur
skapast frítökuréttur (11 – 7 = x 1,5 = 6 tímar

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 11

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frávik frá 11 klst. lágmarkshvíld
 Sérstakar aðstæður: Við sérstakar aðstæður er heimilt að
stytta samfellda lágmarkshvíld i allt að 8 klst. og lengja
vinnulotu í allt að 16 klst., þ.e.a.s við ófyrirsjáanleg atvik
þegar bjarga verðmætum. Ennfremur þegar almannaheill
krefst þess og/eða halda þarf upp nauðsynlegri heilbrigðiseða öryggisþjónustu
 Ef truflun verður á starfsmeni vegna ytri aðstæðna: svo sem
vegna veðurs eða annarra náttúruafla, slysa, orkuskorts,
bilana í vélum eða öðrum búnaði eða annarra slíkra
ófyrirséðra atvika, má víkja frá ákvæðum um daglega
lágmarkshvíld að því marki sem nauðsynlegt er til a koma í
veg fyrir veruleg starfsemi hefur komist á að nýju.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 12

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Meginregla vegna frávika





Venjubundinn vinnutími hefst kl 8:00.
Starfsmaður vinnur til kl. 23:00.
Starfsmaður tekur að lokinni vinnulotu 11 klst. hvíld.
Starfsmaður á því að mæta til vinnu kl. 10:00 næsta dag og
heldur óskertu dagvinnulaunum.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 13

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

11 klst hvíld frestað að hluta
 Hafi stjórnandi metið það svo að brýn nauðsyn sé til að
starfsmaður mæti til vinnu áður en 11 klst lágmarkshvíld er
náð, skapast frítökuréttur, 1 ½ klst (í dagvinnu) fyrir hverja
klukkustund sem hvíldin skerðist. Ávinnsla frítökuréttar
einskorðast ekki við heilar stundir. Starfsmaður á ekki að
mæta aftur til vinnu fyrr en að aflokinni 11 klst. hvíld nema
hann hafi sérstaklega verið beðinn um það. Mæti
starfsmaður eigi að síður áður en hann hefur náð hvíldinni
ávinnur hann sér ekki frítökurétt.
 Sama regla og hér að ofan gildir ef svo lengi er unnið á undan
frídegi eða helgi að starfsmaður nái ekki 11 stunda hvíld
miðað við venjubundið upphaf dagvinnu.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 14

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frítökuréttur
dæmi
 Venjubundinn vinnudagur hefst kl. 8:00
 Starfsmaður vinnu til kl. 23:00
 Hann er beðinn um að mæta á reglubundnu upphafi vinnutíma
kl. 8:00
 2 klst vantar upp á 11 klst samfellda hvíld (hvíld frá 23 til
08)
 Starfsmaður hefur áunnið sér frítökurétt sem nemur 2 *1,5
klst = 3 klst
 Heimilt er ef starfsmaður óskar þess að greiða
hvíldaruppbótina, 1 klst í þessu dæmi, út í peningum.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 15

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frítökuréttur
dæmi II
 08:00 – 16:00 reglubundin vakt
16:00 – 23:30 aukavakt
08:00 – 16:00 reglubundin vakt næsta dag
Á þessum sólarhring einungis 8 ½ stund í frí == >
11 – 8,5 = 2,5 * 1,5 = 3,75 st. í frítöku.
08:00 – 16:00 reglubundin vakt, mánudagur
16:00 – 24:00 aukavakt frá 16:00 – 23:30,þriðjudagur
08:00 – 16:00 miðvikudagur
Á sólarhringnum þriðjud./miðvikud. næst ekki 11 klst. hvíld
==> 11 – 8 = 3 * 1, 5 = 4,5 st. Í frítöku.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 16

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samfelld hvíld rofin með útkalli – frítökuréttur
miðað við lengsta hlé
 Ef hvíld er rofin einu sinni eða oftar innan 24 stunda tímabils
miðað við skipulagt/venjubundið upphaf vinnudags
starfsmanns, skal bæta það sem vantar upp á a 11 klst hvíld
náist, miðað við lengst hlé innan vinnulotu, með frítökurétti 1
½ klst í dagvinnu fyrir hverja klukkustund sem vantar upp á
11 klst. hvíld

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 17

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samfelld hvíld rofin með útkalli
dæmi
 08:00-16:00 vinna, 8 tímar
16:00-20:00 hvíld, 4 tímar
20:00- 04:00 vinna, 8 tímar
04:00-08:00 hvíld, 4 tímar
Vinna samtals á sólarhringnum eru 16 tímar. Lengsta hlé (milli 16:00 og
20:00) eru fjórir tímar
 11 – 4 = 7 * 1,5 = 10,5 st. í frítöku.
08:00-16:00 vinna, 8 tímar
16:00-01:00 hlé, 9 tímar
01:00-05:00 vinna, 4 tímar
Lengsta hlé eru 9 tímar  11 – 9 = 2 * 1,5 = 3 st. Í frítöku

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 18

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

frítökuréttur
vinna umfram 16 klst.
 Hafi starfsmaður unnið samtals meira en 16 klst. á einum
sólarhring,
þ.e.
hverjum
24
klst.,
miðað
við
skipulagt/venjubundið upphaf vinnudags starfsmanns, án þess
að ná 8 klst. samfelldri hvíld, skal starfsmaður
undantekningarlaust fá 11 klst. samfellda hvíld að lokinni
vinnu, án frádráttar á þeim launum sem hann annars hefði
fengið. Frítökuréttur, 1,5 klst. (dagvinna) safnast upp fyrir
hverja klst. sem unnin var umfram 16 klst.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 19

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Vinna umfram 16 klst
dæmi
 08:00-18:00 vinna, 10 tímar
18:00-20:00 hvíld, 2 tímar
20:00- 04:00 vinna, 8 tímar
04:00-08:00 hvíld, 4 tímar
Vinna samtals á sólarhringnum eru 18 tímar. Lengsta hlé (milli
04:00-08:00) eru fjórir tímar
 11 – 4 = 7 * 1,5 = 10,5 st. í frítöku. +
18 – 16 = 2 * 1,5 = 3 st. samtals 13,5 st. í frítöku

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 20

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Vinna á undan frí- eða hátíðisdögum
 Sama regla gildir um vinnu á undan frídegi og aðra daga.
Stafsmaður skal hafa fengið 11 klst hvíld miðað við upphaf
venjubundinnar dagvinnu.
 Dæmi:
 Venjubundið upphaf dagvinnu er kl. 8:00
 Starfsmaður vinnur til kl. 24:00 á föstudagkvöldi.
 Starfsmaður mætir ekki til vinnu á laugardegi.
 Starfsmaður hafði aðeins fengið 8stunda hvíld á
sólarhringnum miðað við venjubundið upphaf dagvinnu.
 Starfsmaður á frítökurétti 3 * 1,5 klst = 4,5 klst.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 21

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Takmörkuð heimild til greiðslu í stað frítöku
 Heimilt er að greiða álagið sem samsvarar 1/3 af
uppsöfnuðum frítökurétti óski starfsmaður þess.
 Þetta þýðir að álagið verður ekki greitt út nema
starfsmaðurinn óski eftir því.
 Vinnuveitandanum er þó ekki skylt að verða við þeirri beiðni.
 Þessa uppbót/álag skal greiða með dagvinnukaupi.
 Skiptir ekki máli hvenær sólarhringsins eða vikunnar
frítökurétturinn skapaðist.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 22

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Uppsöfnun og úttekt á frítökurétti
 Uppsafnaður frítökuréttur skal koma fram á launaseðli.
 Veitt í hálfum eða heilum dögum utan annatíma í starfsemi
stofnunar í samráði við starfsmenn.
 Frítökuréttur fyrnist ekki
 Uppgjör við starfslok og gerður upp með sama hætti og orlof.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 23

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Vikulegur frídagur
 Meginreglan um einn frídag í viku
 35 klst. samfelld hvíld (11 + 24 klst)
 Vikulegur frídagur á sunnudegi ef því verður við komið.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 24

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frídegi frestað
 Heimilt í tveimur tilvikum:
 Í undantekningartilvikum með samkomulagi við
starfsmenn
 Reglubundið með kjarasamningi
 Kjarasamningar segja: að í stað vikulegs hvíldardags
komi tveir samfelldir hvíldardagar á hverjum tveimur
vikum.
 Sé vikulegum frídegi frestað skal veita samsvarandi
frí í staðinn innan 14 daga, þ.e. tvo frídaga í vikunni
þar á eftir.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 25

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frídegi frestað - dæmi
 Vinna þarf næstu tvær helgar.
 Tveir kosti í stöðunni
 Að hluti starfsmanna vinnu næstu tvo laugardaga og hinn
hlutinn sunnudagana
 Eða
 Að hluti þeirra vinni fyrri helgina og hinn hlutinn þá síðari.
 Samkomulag næst um síðari kostinn

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 26

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Frídegi frestað .....
 Náist ekki samkomulag um frestun á vikulegum frídegi á
starfsmaður rétt á frídegi á reglubundnum vinnudegi í vikunni
þar á eftir.
 Falli frídagur þannig á reglubundinn vinnudag skerðir það ekki
rétt starfsmanns til fastra launa og vaktaálgas.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 27

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

35 stunda samfelld hvíld næst ekki - dæmi
 Starfsmaður er kallaður út á laugardegi og vinnur til kl.
24:00
 Hann fær þannig 8 klst hvíld í tengslum við sinn vikulega
frídag.
 3 stundir vantar upp á að hann hafi fengið fulla 11 klst hvíld í
tengslum við frídaginn
 Hann er sérstaklega beðinn um að mæta kl. 8:00 á
mánudagsmorgni.
 Hann öðlast þá frítökurétt, 4,5 stundir (3 * 1,5)

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 28

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Heimild í kjarasamningi
 Þurfi að skipuleggja vinnu þannig að vikulegum frídegi sé
frestað skal gera um það kjarasamning.
 Allt að 12 daga samfelldar vinnulotur og tveir frídagar þar á
eftir.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 29

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samráðsnefnd um vinnutíma
 Skv. 14 gr. samningsins um skipulag vinnutíma skal sett á fót
samráðsnefnd um vinnutíma

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 30

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samráðsnefnd um vinnutíma - skipun
 Samráðsnefnd um vinnutíma er skipuð tveimur fulltrúum
ríkisins, einum frá Rvb., einum frá LN, einum frá ASÍ, einum
frá BHM, einum frá BSRB og einum frá KÍ

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 31

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samráðsnefnd um vinnutíma - Hlutverk
 Samráðsnefnd um vinnutíma skal fjalla um útfærslu og túlkun
einstakra ákvæða samningsins samkvæmt erindum sem vísað
er til nefndarinnar. Áður en nefndin fjallar um tiltekið
ágreiningefni, skulu hlutaðeigandi áður hafa reynt að leysa
það á viðeigandi vettvangi.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 32

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samráðsnefnd um vinnutíma - niðurstaða
 Til þess að niðurstaða samráðsnefndar um vinnutíma sé
bindandi, þarf samþykki allra viðstaddra nefndarmanna enda
hafi fundur verið löglega boðaður. Fundur er ályktunarhæfur
þegar a.m.k. 6 nefndarmenn eru viðstaddir.

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 33

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Samráðsnefnd um vinnutíma - eyðublað
 Samráðsnefnd um vinnutíma lét útbúa form til að skrifa
erindi til nefndarinnar, er það að finna á
eftirfarandihttp://www.fjr.is/
 Sjá tvo dæmi

Helga Birna Ingimundardóttir


Slide 34

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22 – 108 Rvk.

Takk fyrir

Helga Birna Ingimundardóttir