Ísland sem fjölmenningarsamfélag

Download Report

Transcript Ísland sem fjölmenningarsamfélag

Menning - fjölmenning
Um samfélög, þjóðir þjóðarbrot og
fjölmenningu
Garðar Gíslason
1
Samfélag
Hvað er samfélag? Það er hópur fólks
sem býr saman í skipulögðum félagsskap
Samskiptahættir tengja saman fólk með
sömu menningu.
Garðar Gíslason
2
Helstu verkefni allra samfélaga
Nýliðun:
Börn fæðast inn í samfélagið eða nýir
einstaklingar flytja inn í það.
Félagsmótun:
Einstaklingar læra hvað felst í því að vera
meðlimur í samfélaginu.
Garðar Gíslason
3
Helstu verkefni allra samfélaga
Framleiðsla og
skipting gæða:
Sjá til þess að
lífsnauðsynjar séu
framleiddar og þeim
skipt með einhverjum
hætti milli íbúanna.
Garðar Gíslason
4
Helstu verkefni allra samfélaga
Verkaskipting:
Verkum skipt milli hópa eða
einstaklinga.
Skipting valda og miðstýring:
Hver ræður?
Garðar Gíslason
5
Þjóðir og þjóðarbrot
Þjóð: Hópur fólks sem myndar eina heild.
Hópurinn talar yfirleitt sama mál og á sér
sameiginlega sögu og menningu. Þjóðin
býr í eigin ríki eða sækist eftir að stofna
eigið ríki.
Garðar Gíslason
6
Þjóðir og þjóðarbrot
Þjóðarbrot: Minnihlutahópar í tilteknum
ríkjum. Tungumál, menning og saga
þjóðarbrotsins og meirihlutans sem ræður
ríkinu eru oft ólík. Þjóðarbrotin skipa því
venjulega lágan sess í ríkinu.
Garðar Gíslason
7
Þjóðir og þjóðarbrot
Mikilvægasti munurinn á þjóð og
þjóðarbroti eru tengslin við ríkið.
Geturðu nefnt nokkur dæmi um þjóðir
annars vegar og þjóðarbrot hins vegar?
Garðar Gíslason
8
Þjóðhverfur hugsunarháttur:
Þegar fólk dæmir framandi siði og venjur
út frá eigin menningu.
Þegar fólk staðsetur eigin þjóð í miðju og
raðar öllum öðrum þjóðum á kvarða eftir
því hversu mikið þær líkjast því sjálfu.
Garðar Gíslason
9
Þjóðhverfur hugsunarháttur
Getur reynst gagnlegur við að styrkja
samstöðu innan þjóðar og trú hennar á
eigin hefðum og siðum.
Getur reynst mjög skaðlegur þar sem hann
getur ýtt undir kynþáttafordóma og hvers
konar mismunun, skapað óvild og staðið í
vegi breytinga.
Garðar Gíslason
10
Afstæðishyggja
Andstæða þjóðhverfs hugsunarháttar.
Segir að menning sé afstæð og ekki sé
hægt að skilja menningu nema út frá henni
sjálfri.
Allir menningarheimar eru jafn réttháir.
Garðar Gíslason
11
Afstæðishyggja
Útilokað að flokka menningu eftir gæðum,
siðgæði eða þróunarstigi. Allt er jafn gott
svo framarlega sem það er hluti menningar.
Gagnleg við að berjast gegn ýmis konar
fordómum.
Garðar Gíslason
12
Afstæðishyggja
Skaðleg þegar reynt er að afsaka t.d.
limlestingar á kynfærum stúlkna út frá
menningunni.
Getur þú nefnt fleiri dæmi um þjóðhverfan
hugsunarhátt og afstæðishyggju út frá
punktunum hér að framan?
Garðar Gíslason
13
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Innflytjendum hefur fjölgað mikið á
Íslandi síðustu árin.
Árið 2002 voru þeir 4% af íbúum
landsins.
Garðar Gíslason
14
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Af hverju flyst fólk hingað?
Sumir í leit að betri lífskjörum
Sumir eiga maka eða skyldmenni hér á landi
Sumir hafa ákveðið að setjast hér að fyrir fullt og
allt en aðrir eru hér bara tímabundið
Garðar Gíslason
15
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Fjölmennustu hóparnir (2004)
Pólverjar (1903
Danir (890)
Ríki í fyrrum Júgóslavíu (670)
Filippseyjingar (647)
Þjóðverjar (540)
Bandaríkjamenn (515)
Taílendingar (490)
Garðar Gíslason
16
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Er Ísland fjölmenningarsamfélag?
Nauðhyggjumenn tala um óhjákvæmilega
þróun – með nauðhyggju er átt við að allt
sem gerist verði að nauðsyn og ákvarðast af
því sem á undan er gengið. Maðurinn hefur
því lítið viljafrelsi, ákvarðanir hans ráðast –
eins og annað – af náttúrulegum orsökum
Garðar Gíslason
17
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Hversu vel/illa líkar “okkur” við
fjölmenningarlegt samfélag?
Eru “Íslendingar” fordómafullir?
Hvað er það að vera íslendingur?
Garðar Gíslason
18
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Hvað er fjölmenning ekki?
Hún felst ekki í því einu að útlendingar
flytji hingað og setjist hér að.
Ísland verður ekki fjölmenningarsamfélag
þó við tökum upp á því að ráða útlending
í stöðu
Garðar Gíslason
19
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Fjölmenning felst í
því að leyfa
útlendingum að
auðga menningu
okkar – við ættum
að læra eitthvað af
því og bæta
reynslu þess við
okkar.
Garðar Gíslason
20
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Hvað veistu um
fjölmennustu
innflytjendahópan
a hér á landi svo
sem pólverja, fólk
frá fyrrum
Júgóslavíu eða
dani?
Garðar Gíslason
21
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Fjölmiðlar/skólarnir ættu að miðla
menningu þessara hópa hér á landi
– þessir aðilar hafa ekki staðið sig í
stykkinu hvað það varðar
Garðar Gíslason
22
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Andstæða fjölmenningar er hin
gríðarmikla ameríkanasering sem
tröllríður öllu hér á landi
Ameríkanísering er andstæða
fjölmenningar vegna þess að hún
gerir allt eins
Garðar Gíslason
23
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Að kitla þjóðarstoltið
Afreksmenn í hópi nýbúa eru öllum til
sóma. Sumir þeirra hafa góðu heilli
fengið íslenskan ríkisborgararétt og
borið hróður landsins víða.
Garðar Gíslason
24
Ísland sem fjölmenningarsamfélag
Að kitla þjóðarstoltið
Dæmi um það eru píanóleikarinn Vladimir
Ashkenazy, handboltamennirnir Róbert
Julian Duranona og Roland Valur Eradze,
fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson og
skákkonan Lenka Ptácnikova.
Garðar Gíslason
25