Boðskiptaleikir

Download Report

Transcript Boðskiptaleikir

Lappalappa kónguló
Tákn: kónguló
Setið á móti nemanda
Lappalappa kónguló, lappalappa kónguló,
Labbalabbarí mosató, labbalabbar í mosató.
Flugan suðar zzzzzzzzzzzzzzzzzzzz
Lappalappa kónguló, labbalabbar í mosató.
Lappababba læðist og læðist og læðist.
Lappalabba læðist og læðist og læðist.
Nú næ ég þér fluga!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Fingur kennara trítla í lófanum
Sama
Þegar suðið kemur
fer kennari upp að
eyra nemanda – frekar snöggt.
Fingur kennara trítla í lófanum
Fingur kennara færast upp
handlegg nemanda
Örstutt bið á eftir
Kitl í hálsakot
Jói sjóari
Nemandi situr í fangi
Jói fór á sjóinn, hó, hó, hó.
Rugga og rugga, ró, ró, ró.
Sól og sjór, sól og sjór.
Sólin fór, sólin fór.
Ó ó ó. Ó ó ó.
Vindurinn blés og blés og blés og blés
og þeytti Jóa út á sjó.
Rugga til hliðar
Sama
Sama
Sama
Hætta – vera kyrr
Rugga fram og aftur
Snúa hratt í hring
Gummi krummi
Nemandi situr á dýnu í fangi kennara og snýr baki að honum.
Kennari heldur utan um nemandann
og ruggar í takt við vísuna
og segir hvert vísuorð með sterkum áherslum og hreyfingum:
“Gummi krummi eins og egg,.......”
“Hrundi – niður – af – háum (merki).”
Kennari lyftir nemanda upp og bíður andartak
“Vegg!”
Lætur nemandann detta aftur fyrir sig upp að kennaranum (umbun).
Litla bangsaskinn
,,Hring eftir hring fer litla bangsaskinn”
kennari hreyfir vísifingur í hringi í lófa nemandans
,,eitt skref”
færir fingurinn hratt yfir á framhandlegg
,,tvö skref”
færir fingurinn hratt upp á miðjan upphandlegg
,,oooooooooooog”
hreyfir hendi í kitlstöðu
,,kitlar krikann þinn.”
færir fingur upp eftir handlegg nemandans og
kitlar hann í armkrikann, þó ekki bundið við hann.
Getur t.d. alveg eins verið hálsakot.
Hestaleikur
Kennari situr með nemanda í fanginu og hossar honum.
“Svona ríður jómfrúin, svona ríður jómfrúin,,
kennari hossar nemanda létt.
“Svona ríður herramann, svona ríður herramann,,
kennari hossar nemanda hærra.
“svona ríður bóndinn og bóndinn á bikkjunni sinni,,
kennari hossar nemanda hátt (eins og hann þolir) og
lætur hann detta milli fóta sér niður á dýnuna á síðasta
orðinu.
Pabbaþula
Kennari situr á dýnu með nemanda í fanginu.
“(nafn nemanda) og pabbi fara í sund,
(nafn nemanda) og pabbi fara í sund,,
kennari ruggar nemanda til hliðanna.
“(nafn nemanda) og pabbi synda og synda og sssvvvooooo,,
kennari lyftir nemanda með bylgjuhreyfingum,
“hoppa þeir út í laugina,,
kennari lætur nemanda detta milli fóta sér niður á dýnuna.
Fagur fiskur í sjó
Fagur, fagur fiskur í sjó,
brettist upp á halanum
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda gættu þinna handa.
Vingur, slingur vara þína fingur.
Fetta, bretta, brátt skal högg á hendi detta.
Lófi nemanda strokinn
á meðan farið er
með þuluna
Slegið létt á lófann
Kemur maður gangandi
Kemur maður gangandi
ætlar að finna (nafn nemanda).
Bankar á hurðina,
gægist inn um gluggana,
snýr lyklinum,
þurrkar sér á mottunni
og gengur inn.
Norðlensk útgáfa:
Kemur maður gangandi
neðan úr Lappaskinni.
Hann ætlar upp í Hálsakot
að fá að lúra inni.
Kennari lætur fingur ganga upp
bringu eða handlegg nemanda,
bankar á hökuna
færir fingur að augum
snýr létt upp á nefið
tifar með fingrum á höku
kitlar hálsakot
Karl gekk út um morguntíma
Karl gekk út um morguntíma,
taldi alla sauði sína.
Einn og tveir og þrír og fjórir,
allir voru þeir.
Með höndunum gerum við klapp, klapp, klapp.
Með fótunum gerum við stapp, stapp, stapp.
Einn, tveir, þrír ofurlítið spor,
einmitt á þennan hátt er leikur vor.
Klappa saman lófunum
Klappa saman lófunum,
reka féð úr móunum.
Vinna sér inn bita
láta ekki pabba vita.
Klappa saman lófunum
reka féð úr móunum.
Vinna sér inn bita,
láta ekki pabba vita.
Feluleikur
Tákn: Svart efni
Nemandi situr á móti kennara. Kennari býður nemanda að fara í feluleik.
,,Eigum við að koma í feluleik?”
Bíður eftir svari nemandans.
,,Vill (nafn nemanda) byrja?”
Kennari setur efnið yfir nemandann og spyr;
,,Hvar er (nafn nemanda)? Er hann (nafn nemanda) týndur?”
Kennari dregur svo efnið rólega af nemandanum og segir;
,,Þarna er (nafn nemanda)!!!”
Kennari segir: ,,Nú ætlar (nafn kennara) að fela sig.”
Setur efnið yfir höfuð sér.
“Er hún (nafn kennara) týnd? Hvar er hún (nafn kennara)?”
Kennari býður nemanda að finna sig.
Hann aðstoðar nemanda ef með þarf að taka efnið af kennaranum og segir;
,,Þarna var hún (nafn kennara).”
Vísifingur
Tákn: Fingrabrúða
Ég heiti Vísifingur,
mig hneigi og segi hæ!
Ég hringi dyrabjöllu,
komdu með nið´rí bæ!
HÆÆÆÆ!!!!!!!!
Brúða hneigir sig.
Fingrabrúða snertir nef nemanda.
Brúða hneigir sig.
Sama.
Brúða kitlar nemanda í hálsakot.
Gulli geimfari
Nemandi situr í fangi
Gulli geimfari geiminn skoðar
Flýgur hátt og skoðar geiminn
Gulli geimfari geiminn skoðar,
Flýgur hátt og skoðar geiminn.
Skrímslið skoðar Gulla geimfara
Hann vill heim fara
Nei, ó nei, ó nei, ó nei.
Nú kem ég og tek þig, Gullagrey
Snúa skrifstofustól hægt í hring
Sama
Sama
Sama
Trampa með fótunum
Sama
Sama
Snúa hratt í hring
nemanda