Upprifjun 2-1
Download
Report
Transcript Upprifjun 2-1
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-1
1.Hverjar eru hlöðnu eindirnar í frumeind?
Róteindir eru jákvætt hlaðnar og rafeindir
eru neitkvætt hlaðnar.
2.Hvaða regla gildir um samkynja og
ósamkynja rafhleðslur?
Samkynja hleðslur hrinda hver annarri frá
sér. Ósamkynja hleðslur dragast hver að
annarri.
1
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-1
3. Hvers vegna verður hlutur rafhlaðinn?
Rafeindir færast frá einum hlut til annars,
venjulega vegna einhverrar röskunar, til
dæmis ef þeir verða fyrir núningi.
Sá hlutur sem missir rafeindir verður
jákvætt hlaðinn.
Sá hlutur sem tekur við rafeindum verður
neikvætt hlaðinn.
2
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-1
4.Jákvætt hlaðinni eind …………….hlöðnu.
Jákvætt hlaðna eindin verður fyrir
fráhrindikröftum, en neikvætt hlaðna eindin
dregst að eindinni X.
• Fráhrindikraftarnir sem verka á jákvætt
hlöðnu eindina eru talsvert sterkari en þeir
aðdráttarkraftar sem verka á neikvætt
hlöðnu eindina. Þetta er svo vegna þess að
fjarlægðin til eindar X er mun minni í fyrra
3
tilvikinu.
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-2
1. Hvað er stöðurafmagn?
Stöðurafmagn stafar af rafhleðslum sem
safnast fyrir í hlut.
2. Á hvað þrjá vegu getur hlutur orðið
rafhlaðinn?
Með núningi, leiðingu og rafhrifum.
4
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-2
3.Hvernig getur þú séð hvort hlutur sem
tengdur er rafsjá ber rafhleðslu eða er
óhlaðinn?
Ef hluturinn ber rafhleðslu sperrast þynnur
rafsjárinnar sundur.
5
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-2
4. Hvað er elding?
Elding stafar af afhleðslu stöðurafmagns frá
skýi til skýs eða frá skýi til jarðar og er
eiginlega risavaxinn neisti.
5. Hvað er spenna? Hver er mælieiningin?
Spenna er mælikvarði á þá orku sem er fyrir
hendi til þess að hreyfa rafeindir.
Mælieiningin er volt [V]
6
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-2
6. Hverju breytti það ef eldingavari væri úr
einangrara í stað leiðara?
Rafmagn eldingarinnar kæmist ekki niður
eftir eldingarvaranum og yrði því að finna
sér annan farveg, til dæmis gegnum
bygginguna sem eldinarvarinn hefði átt að
vernda. Eldingarvari úr einangrar væri því
verri en enginn.
7
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-3
1.Hvaða eining er notuð til þess að mæla
rafstraum?
Amper.
2.Nefndu tvær gerðir tækja sem geta geymt
orku.
Rafhlaða og rafgeymir.
8
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-3
3.Sýndu formúluna sem notuð er til þess að
reikna afl.
Afl = spenna ·rafstraumur
eða vött = volt ·amper
4.Hvernig er regla Ohms?
V=I·R
(eða I = V / R)
9
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-4
1.Hvað er straumrás?
Samfelld rás eða braut sem rafeindir geta
farið eftir.
2.Berðu saman raðtengda og hliðtengda
straumrás.
Raðtengd straumrás er þar sem rafeindir
geta eingöngu farið eftir einni braut, en í
hliðtengdri straumrás geta rafeindir flætt
eftir nokkrum mismunandi rásum.
10
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-4
3.Eru bræðivör eða sjálfvör heima hjá þér?
Útskýrðu hvernig þessi búnaður verkar.
(Hjá flestum eru sjálfvör.)
Bræðivör: Málmþráður bráðnar ef of mikill
straumur fer gegnum þau. Sjálfvör: Rofi
opnast og rýfur straumrásina ef álag verður
of mikið.
11
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-5
1.Hvað orsakar segulkraft?
Rafhleðslur sem eru á hreyfingu eða
snúningur (spuni) rafeinda.
2.Hvað nefnast endar seguls?
Norðursegulskaut og suðursegulskaut.
12
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-5
3.Lýstu helstu einkennum segulkrafta.
Segulkraftar eru kraftar sem verka milli
rafhlaðinna hluta og eru bæði fráhrindi- og
aðdráttarkraftar. Þeir eru sterkastir við
skaut hvers seguls.
13
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-6
1.Skýrðu þau nánu tengsl sem eru milli
segulmagns og rafmagns.
Bæði fyrirbærin byggjast á hreyfingu
rafeinda.
2.Hvaða munur er á rafsegli og sísegli?
Rafsegull er segulmagnaður aðeins skamma
stund fyrir tilstilli rafmagns, en sísegull
heldur segulmagni sínu.
14
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-6
3.Nefndu dæmi um notagildi rafsegla.
Rafseglar eru notaðir í rafhreyflum
(rafmóturum) og til þess að lyfta
járnhlutum.
Dyrabjöllum og víðar.
15
Rafmagn og segulmagn
Upprifjun 3-7
1.Hvernig má framleiða rafmagn með
segulmagni?
Með því að láta vír hreyfast í segulsviði eða
með því að breyta segulsviði sem umlykur
vír.
2.Hvaða orkubreyting á sér stað í rafli?
Stöðu- og hreyfiorka => vélræn orka =>
raforka.
16